Afmælisplata #53: Korn – Follow the Leader

2018 útgáfa – Discogs: €26.00

Follow the Leader er 28 ára í dag!

Það var í rauninni í kjölfar útgáfu þessarar plötu sem ég byrjaði að hlusta á Korn. Geisladiskurinn byrjar á lagi 13, eftir mínútuþögn eða 12 stk af 5 sekúndna lögum án hljóðs. Geisladiskurinn er svo með leynilagi sem vínyllinn minn er ekki með. Þetta er platan sem kom þeim almennilega á kortið í meginstraumnum, en þeir voru vissulega farnir að banka á dyrnar aðeins fyrr. Flott plata sem ég hlustaði mjög mikið á rétt fyrir aldamót.

Hlið One
  1. It’s On!
    Um hópþrýsting segir einhvers staðar á netinu.
  2. Freak on a Leash
    Hér er kvartað yfir hvernig tónlistarbransinn virkar
  3. Got the Life
    Er það ekki 42?
Hlið Two
  1. Dead Bodies Everywhere
    Jonathan Davis vann ungur í líkhúsi og faðir hans hafði ekki mikla trú á tónlistarferlinum. Textinn fjallar um að láta ekki þrýsting frá foreldrum gera út af við drauma þína.
  2. Children of the Korn
    Uppreisnarsöngur kynslóðar. Titillinn er vísun í smásögu eftir Stephen King og gestasöngvari í laginu er Ice Cube
  3. B.B.K.
    Einhver innri barátta hjá Jonathan Davis
  4. Pretty
    Eins og kom fram hér að ofan, þá vann Jonathan Davis á líkhúsi. Þetta er lag um ógeðslegasta tilfellið tengt því starfi.
Hlið Three
  1. All in the Family
    Þetta þótti fyndið en hefur elst illa
  2. Reclaim My Place
    Hér fjallar Jonathan Davis um eineltið sem hann lenti í
  3. Justin
    Justin var ungur drengur sem var að deyja úr krabbameini. Síðasta ósk hans var að hitta hljómsveitina Korn. Hann fékk þá ósk uppfyllta og þeir sömdu lag.
Hlið Four
  1. Seed
    Áhyggju- og sakleysi ungdómsins. Innblásturinn kemur frá því þegar Jonathan Davis horfir í augu sonar síns.
  2. Cameltosis
    Korn útgáfa af Love Hurts
  3. My Gift to You
    Ástarsöngur til þáverandi unnustu
    Spjallið fyrir “leynilagið” kemur á eftir þessu, en ekki lagið sjálft

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top