
Svartir sandar er 15 ára í dag!
Löng plata, löng lög og hægar uppbyggingar sem springa út með látum. Titill plötunnar mjög viðeigandi, þar sem stemmningin er í takt við þunglamalegt íslenskt veður og auðn. Eintakið mitt er þrettánda pressa af tvöföldum svörtum vínyl í gatefold umslagi, en platan skiptist upp í hlutana Andvari og Gola.
Andvari A
- Ljós í stormi
Maður með sjálfseyðingarhvöt finnur skjól hjá annarri manneskju. - Fjara
Þekktasta lag plötunnar. Sársaukafull sambandsslit?
Andvari B
- Þín orð
Ekki mikill texti að vinna með. Einhver orð sem sitja í honum? - Sjúki skugginn
Myrkt hugarástand sem maður vill losna úr. - Æra
Maður gefur sig allan í samband, en situr eftir með söknuð. - Kukl
Eigi leið þú oss í freistni
Gola A
- Melrakkablús
Einmanaleiki og vonleysi - Draumfari
Instrumental - Stinningskaldi
Veðurfréttir Gerðar G Bjarklind - Stormfari
Að rísa upp og sigrast á mótlæti
Gola B
- Svartir sandar
Samband þar sem ástin hefur kulnað. - Djákninn
Að vera ásóttur af gömlum syndum
