Afmælisplata #52: Lynyrd Skynyrd – (Pronounced ‘Lĕh-‘nérd ‘Skin-‘nérd)

2023 útgáfa – Discogs: €29.88

Fyrsta plata Lynyrd Skynyrd er 53 ára í dag!

Stórkostleg átta laga frumraun sem inniheldur þrjú bestu lög þeirra á ferlinum! Mitt eintak er appelsínugulur vínýll í gatefold umslagi sem kom út á 50 ára afmæli plötunnar. Ég veit þó ekki til þess að þetta hafi verið sérstök afmælisútgáfa.

Hlið One á umslagi, 1 á plötu
  1. I Ain’t the One
    Sögumaður hafnar konu sem er á eftir honum. Honum finnst m.a. loforð hennar um fjárhagslegt öryggi í gegnum föður sinn óþægileg.
  2. Tuesday’s Gone
    Eitt af þeirra þremur bestu lögum. Það er fortíðarþrá í þessu lagi. Þetta er spilað í upphafi og lok Happy Gilmore og kveikir strax í mér hlýju. Einnig er eftirminnileg ábreiða af laginu á Metallica plötunni Garage Inc, þar sem Gary Rossington gítarleikari Lynyrd Skynyrd er með þeim, ásamt Les Claypool úr Primus, tveggja meðlima úr Alice in Chains og nokkurra annarra þekktra hljómsveita.
  3. Gimme Three Steps
    Fyrsti singúll af tveimur á plötunni. Viðreynsla við frátekna dömu sem hefur þær afleiðingar að kærastinn dregur upp byssu. Frábært lag, en ekki eitt af þeirra þremur bestu.
  4. Simple Man
    Annað af þeirra þremur bestu. Móðir leggur syni sínum lífsreglurnar. Notalegt og gullfallegt lag.
Hlið Two á umslagi, 2 á plötu
  1. Things Goin’ On
    Gagnrýni á forgangsröðun stjórnvalda. Það er meiri peningum eytt í stríðsrekstur heldur en félagsleg vandamál.
  2. Mississipi Kid
    Það er suðurríkjastolt í sögumanni, sem er nokkuð prúnkinn með sig.
  3. Poison Whiskey
    Boðskapur sögunnar er að fara varlega í vískídrykkju.
  4. Free Bird
    Síðasta lagið á plötunni, er hluti af þeirra þremur bestu lögum. Það er með trega sem náunginn velur frelsið yfir ástina. Gítarsólóið í lokin mjög þekkt.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top