
Vol. 4 með Black Sabbath er 54 ára í dag!
Eins og nafnið gefur til kynna er þetta fjórða plata þeirra, en hú átti upphaflega að heita Snowblind. Útgefendur samþykktu það ekki, því það titillin þótti of augljós vísun í kókaín. Sérstaklega í ljósi þess hve mikil neyslan við við gerð plötunnar, en hún er oft nefnd kókaínplatan þeirra. Ég veit ekki hvort væri réttast að kalla hana ójafnari, tilraunakenndari eða fjölbreyttari en fyrstu þrjár plöturnar, en góð er hún allavega.
Hlið A á plötu, One á umslagi
- Wheels of Confusion
Byrjar svolítið eins og “Piece of My Heart”, en fljótlega dettur inn ekta Sabbath-riff. Textinn fjallar um að vaxa úr grasi og missa smám saman sakleysi æskunnar. Lagið endar á instrumental kafla sem kallast “The Straightener”. - Tomorrow’s Dream
Eini singúll plötunnar. Fjallar um hvernig vinsælar hljómsveitir geta fljótt horfið af sjónarsviðinu. - Changes
Mögulega einlægasta ballaða þeirra. Bill Ward trommari var að skilja við konu sína á þessum tíma. - FX
Kross sem Tony Iommi bar um háls sinn rakst í gítarstrengina. Þeim fannst það eitthvað áhugavert hljóð og úr varð þessi vitleysa. - Supernaut
Geggjað riff. Lagið inniheldur trommusóló, en ekkert viðlag! Textinn er í grunninn bara “frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil”.
Hlið B á plötu, Two á umslagi
- Snowblind
Kókaínnotkun. Ég heyrði þetta fyrst með System of a Down og hafði ekki hugmynd um meiningu þessa orðs. - Cornucopia
Fjallar um neysluhyggju og græðgi. “Cornucopia” er fornt tákn allsnægta. Áfram nægjusemi! - Laguna Sunrise
Ósungið lag sem Tony Iommi samdi eftir að hafa fengið innblástur við sólarupprás á Laguna strönd í Kaliforníu. - St Vitus Dance
Maður slítur sambandi við konu, því hann heldur að hún sé eingöngu á eftir peningunum hans. Það reynist ekki rétt og eftirsjáin verður enn meiri. - Under the Sun
Að fá að hugsa sjálfstætt í stað þess að láta undan trúarlegum þrýsting.
