
Back in Black er 46 ára í dag!
Ein mest selda plata allra tíma er frábær í alla staði! Fyrsta plata þeirra með nýjum söngvara og þvílík innkoma. Mér tókst að skrapa umslagið aðeins upp í hægra horninu þegar ég tók hana úr plastinu. Þessi plata er hluti af útgáfuveislu á 50 ára afmæli hljómsveitarinnar, en þeir gáfu út allar plötur sínar í gylltum lit af því tilefni.
Hlið One
- Hells Bells
Síðasta plata Bon Scott var Highway to Hell. Þetta lag er til minningar um hann, en það væri gaman að vita hvar þessi bjalla er niðurkomin. Helvíti gott. - Shoot to Thrill
Innblástur textans er frétt um eiturlyfjasala sem seldi húsmæðrum í úthverfum London efni og þær fóru svo út á galeiðuna og gerðu eitthvað af sér. Lagið sló aftur í gegn mörgum árum seinna í Iron Man. - What Do You Do for Money Honey
Hér velta þeir sér fyrir því, hvernig kona hefur ofan í sig og á. - Givin the Dog a Bone
Munnmök. Þeir eru oft dónakallar. - Let Me Put My Love into You
Áframhaldandi dónaskapur, en ekki alveg jafn perralegt og lagið á undan.
Hlið Two
- Back in Black
Næsta hlið opnar á titillaginu, sem er einnig tileinkað Bon Scott. Goðsagnakennt lag. - You Shook Me All Night Long
Eitt þekktasta lagið þeirra og það fyrsta sem Brian Johnson samdi. Kynferðislegt lag með bílamyndlíkingum, en Brian Johnson vann sem bifvélavirki. - Have a Drink on Me
Menn verða að fá sér. - Shake a Leg
Einhver vandræðagemsi - Rock and Roll Ain’t Noise Pollution
Þetta lag náði hæst á breska vinsældarlistanum af öllum lögum plötunnar. Óður til vaggs og veltu.
