Afmælisplata #48: Scars on Broadway – Addicted to the Violence

2025 útgáfa – Discogs: Aldrei seld og engin til sölu

Addicted to the Violence er 1 árs í dag!

Þriðja plata sólóverkefnis Daron Malakian úr System of a Down. Persónulega þá fíla ég eiginlega öll lög sem hann hefur gefið út! Þema plötunnar er kunnuglegt – ofbeldi, stríð, hnignun samfélags, ringulreið og valdabarátta. Flott plata sem kom út á 50 ára afmæli hans. Eintakið mitt er fallegur gylltur vínyll sem kom út í 300 eintökum hjá Revolver Magazine.

Hlið A
  1. Killing Spree
    Samfélagsleg sturlun og vaxandi ofbeldi
  2. Satan Hussein
    Gagnrýni á stjórnvöld/valdhafa, stríðsáróður o.s.frv. Titillinn væntanlega vísun í Saddam Hussein.
  3. Done Me Wrong
    Einhver hefur brugðist manni.
  4. The Shame Game
    Einhver þarf að læra að skammast sín. Kannski eftir að hafa brugðist manni.
  5. Destroy the Power
    Uppreisn gegn valdinu
Hlið B
  1. Your Lives Burn
    Fjölmiðlar og pólitíkusar ljúga og sundra.
  2. Imposter
    Dulbúnir svikamenn á ferð
  3. You Destroy You
    Upplífgandi lag um sjálfseyðingu. Þetta var frumflutt á Grammys 2018.
  4. Watch That Girl
    Hér er varað við stúlku
  5. Addicted to the Violence
    Um eiturlyfjafíkn

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top