
Dirty Deeds Done Dirt Cheap á 50 ára stórafmæli í dag!
Ástralska útgáfan kom semsagt út fyrir 50 árum í dag, en alþjóðlega útgáfan kom út rétt fyrir jólin 1976. Lagalisti áströlsku og alþjóðlegu útgáfu plötunnar er ólíkur, en eintakið mitt er alþjóðlega útgáfan keypt á flóamarkaði í Berlín og merkt C. Brömer. Platan kom ekki út í Bandaríkjunum fyrr en árið 1981, rúmu ári eftir dauða Bon Scott! Heilt yfir er þetta skítugt og dónalegt meistaraverk frá þeim.
Hlið 1 á plötu, One á umslagi
- Dirty Deeds Done Dirt Cheap
Langþekktasta lag plötunnar. Glæpamaður að bjóða fram þjónustu sína. Það er ýmis fróðleikur sem tengist símanúmerinu sem nefnt er í laginu. Nánar um það og aðrar staðreyndir lagsins hér. - Love at First Feel
Mjög vafasamur texti - Big Balls
Tvíræð merking í þessu dónakallagríni. - Rocker
Orkumikið rokklag um að vera rokkari - Problem Child
Vandræðapési
Hlið 2 á plötu, Two á umslagi
- There’s Gonna Be Some Rockin’
Þetta er gamaldags boogie rokkari - Ain’t No Fun (Waiting ‘Round to Be a Millionaire)
Rokkstjörnudraumar, peningar og frægð - Ride On
Einlægur og hægur blúsari sem er svolítið á skjön við annað á plötunni. Tregablandinn tilfinning að heyra þetta í ljósi þess hvernig fór fyrir Bon Scott. - Squealer
Eftir einlægan blúsaran er plötunni lokað á hefðbundnu orkumiklu AC/DC dónalagi.
