Afmælisplata #46: System of a Down – System of a Down

2018 útgáfa – Discogs: €25.76

Fyrsta plata System of a Down er 28 ára í dag!

Þessi plata greip mig strax við fyrstu hlustun og hljómsveitin hefur eiginlega verið uppáhaldi hjá mér síðan. Ég sá þá loksins á tónleikum 17 árum eftir að þessi plata kom út og það eru eftirminnilegustu og bestu tónleikar sem ég hef farið á og verða líklega aldrei toppaðir. Þeir spiluðu m.a. 7 af 13 lögum þessarar plötu, en auk þess fluttu þeir Temper í fyrsta skipti síðan um aldamót sem var geggjað fyrir fanboy eins og mig. Það er semsagt lag sem var tekið upp fyrir plötuna, en endaði ekki á henni.

Hlið A
  1. Suite-Pee
    Gagnrýni á barnaníðinga innan kaþólsku kirkjunnar og ofsatrúarfólk.
  2. Know
    Einhverjar pælingar varðandi trúarbrögð og líf eftir dauðann.
  3. Sugar
    Ýmsar kenningar varðandi þetta. Ég allavega nýtti matartímann í unglingavinnunni oft í að horfa á tónleikaupptöku af þessu frá Farmclub.
  4. Suggestions
    Sjóorrusta! Myndlíking fyrir eitthvað? Örugglega.
  5. Spiders
    Örflaga í heila. Ég nýtti matartímann í unglinginavinnunni oft í að horfa á tónleikaupptöku af þessu frá Conan.
  6. Ddevil
    Hristu spjót þitt í átt að Shakespear.
  7. Soil
    Tileinkað vini hljómsveitarinnar sem framdi sjálfsmorð. Hljómsveitin hét Soil um tíma.
Hlið B
  1. War?
    Ú á stríð
  2. Mind
    Þetta hlýtur að tengjast heilaþvotti. “Free thinkers are dangerous“.
  3. Peephole
    Smá polki og eiturlyfjaþema.
  4. CUBErt
    Ekki spilað oft á tónleikum og því fannst mér tryllt að þetta hafi komið strax í kjölfar Temper á Rock in Rio.
  5. Darts
    Life-threatening lifestyles. A hitman, a nun; lovers“. Ég velti oft fyrir mér hvort þeir meini að það sé yfir höfuð hættulegt að vera elskendur eða hvort hættan stafi af því að elskendurnir séu leigumorðingi og nunna.
  6. P.L.U.C.K.
    Politically, Lying, Unholy, Cowardly, Killers“. Fjallar um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum 1915-1917.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top