
Leviathan er 22 ára í dag!
Önnur plata Mastodon er þemaplata sem er byggð á Moby Dick með smá útúrdúrum. Plata sem kom þeim almennilega á kortið í þungarokkinu. 2024 útgáfan mín er gatefold umslag með flottri hvítri og grænni splatter plötu. Röð laga á plötunni er frábrugðin þeirri á geisladisknum og á Spotify. Þess má geta að Leviathan er goðsagnakennt sæskrímsli sem kemur fyrir í biblíunni og víðar.
Hlið One
- Blood and Thunder
Þráhyggja Ahab skipstjóra gagnvart hvíta hvalnum (Moby Dick). Unaðslegt riff. - Seabeast
Textinn er svolítið torskilinn, en fylgir þemanu. Kannski ég myndi skilja betur ef ég þekkti söguna. Allavega er einhver hefndarþorsti og áhafnarmeðlimir koma líka við sögu. - Iron Tusk
Bardagi við hvalinn. “Iron Tusk” er væntanlega myndlíking fyrir skutul. - Megalodon
Þetta fylgir ekki beint sögunni um Moby Dick. Þetta er almennt um goðsagnakennd sæskrímsli og ótta mannfólksins við hið óþekkta í undirdjúpunum. - Naked Burn
Annar torskilinn texti og kannski ekki eins beintengdur sögunni. Menn eru þó enn á siglingu og eitthvað að berjast við djöfla í hugsunum sínum. - Aqua Dementia
Hér syngur Scott Kelly úr Neurosis. Einhver konar sjó- og geðveiki.
Hlið Two
- I Am Ahab
Eigum við ekki að segja að hér sé skipstjórinn að hefja hefndarför sína - Ísland
Lag um Ísland! Ótengt Moby Dick, en Íslendingar þekkja vissulega sæskrímsli og hvalveiði. Þeir vísa m.a. í nokkur örnefni eins og Gullfoss, Geysi og Heimaey. Þeir spiluðu á Íslandi árið 2013 og hafa verið svona innblásnir af þessari heimsókn. - Hearts Alive
Lokaorrustan við hvíta hvalinn. Skipið er dregið niður í djúpið. - Joseph Merrick
Instrumental. Joseph Merrick er betur þekktur sem fílamaðurinn. Hann varð verulega afmyndaður vegna sjúkdóms sem ágerðist frá barnsaldri.
