Afmælisplata #45: Mars Volta – De-Loused in the Comatorium

2021 útgáfa – Discogs: €32.25

De-Loused in the Comatorium er 23 ára í dag!

Fyrsta plata Mars Volta er plata byggð á smásögu sem þeir félagar sömdu. Ég var rétt byrjaður að lesa þessa smásögu, en gafst upp. Í grófum dráttum er þetta súrrealísk frásögn af draumaheimi Cerpin Taxt, manns sem er í dái eftir ofneyslu. Sagan er af einhverju leyti byggð á Julio Venegas, vini þeirra sem framdi sjálfsmorð. Söguþráður er mjög torskilinn en lögin frábær!
Mitt eintak af plötunni er gatefold með tveimur lituðum vínylplötum, annars vegar gullitað plata og hins vegar dökkgræn. Framhlið umslagsins er frábrugðin því sem ég þekki á geisladisknum, en bakhliðin er það sú sem ég þekki sem framhlið geisladisksins. Lagalistinn er svo inni í opnunni.

Hlið A

  1. Son et Lumiere
    Stuttur inngangur sem opnar dyrnar í draumaheiminn.
  2. Inertiatic ESP
    Ég er lost eins og fleiri.
  3. Roulette Dares (The Haunt of)
    Hefur eitthvað að gera með lestarkirkjugarð.

Hlið B

  1. Tira Me a Las Arañas
    “Kastaðu mér til köngulóanna” – Inngangur í næsta lag.
  2. Drunkship of Lanterns
    Fyrr var lestarkirkjugarður, hér er kafbátakirkjugarður.
  3. Eriatarka
    Læknir með hundshausa á höndum ef ég skil rétt.

Hlið C

  1. Cicatriz ESP
    Læknirinn í laginu á undan breytir Cerpin Taxt í Clavietika Tresojos, sem er einhvers konar vera með þrjú augu og flytur til eyðimerkur sem hefur einhverjar skírskotun í Sovétríkin.
  2. This Apparatus Must Be Unearthed
    Risar finna Clavietika Tresojos og flytja til síns heimabæjar. Geðklofinn bæjarstjóri sannfærir bæjarbúa um að fórna börnum sínum til að koma í veg fyrir að Moatilliatta komi aftur. Borgarstjórinn er hins vegar að borða börnin og tvíburarnir Zxiat og Gheist eru þeir einu sem vita það.

Hlið D

  1. Televators
    Hér er fjallað um Julio Venegas, sem var fyrirmynd Cerpin Taxt.
  2. Take the Veil Cerpin Taxt
    Ég er löngu týndur í þessari sögu. Ég held að hann sé vaknaður úr dái eða allavega þessum súrrealíska draum sé lokið.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top