Afmælisplata #44: Queens of the Stone Age – Songs for the Deaf

Songs for the Deaf er 24 ára í dag!

Songs for the Deaf er þriðja breiðskífa Queens of the Stone Age og sú sem kom þeim almennilega á kortið. Eintakið mitt er amerískur tvöfaldur vínyll í gatefold umslagi. Þetta er alvöru bílaplata, en þemað er einhvers konar bíltúr í gegnum eyðimörkina. Dave Grohl trommar stóran hluta af plötunni og Mark Lanegen syngur nokkur lög. Stórkostleg plata sem er í miklu uppáhaldi hjá mér!

Hlið A
  1. You Think I Ain’t Worth a Dollar, but I Feel Like a Millionaire
    Á fyrstu geisladiskaútgáfum var hægt að spóla til baka og heyra lagið “The Real Song for the Deaf”. Frábært opnunarlag sem byrjar á Kip Kasper hjá KLONE Radio. Smá uppbygging og svo læti. Upphafleg útgáfa frá Desert Sessions.
  2. No One Knows
    Vinsælasta lagið þeirra. Erfitt að halda aftur af sér á lofttrommunum.
  3. First It Giveth
    Hér er fjallað um afleiðingar eiturlyfja
  4. Song for the Dead
    Hér eru Dave Grohl og Mark Lanegan með þeim. Eitt af mínum uppáhalds á plötunni. Þeir voru að spila utandyra í Spandau nýlega, en það hafði farið framhjá mér að þeir væru væntanlegir. Þetta kvöld fór ég í göngutúr með hundinn og heyrði einhver læti í fjarska. Náði þessu sem lokalagi af svölunum heima.
Hlið B
  1. The Sky is Fallin’
    Himnarnir að falla í bíltúrnum. All death metal, all the time.
  2. Six Shooter
    Nick Oliveri gargar í þessu lagi. Gott stöff, eins og allt á þessari plötu.
  3. Hangin’ Tree
    Mark Lanegan syngur aftur. Samið af honum og Alain Johannes, en upphaflega útgáfa úr Desert Sessions upptökum.
  4. Go with the Flow
    Kynferðislegt myndband allavega.
  5. Gonna Leave You
    Nick Oliveri syngur. Lagið er um hans fyrrverandi sem hann ætlaði að skilja við.
Hlið C
  1. Do It Again
    Mikil en góð endurtekning
  2. God is in the Radio
    Mark Lanegan er hér líka. Guð í útvarpinu (í bílnum).
  3. Another Love Song
    Nick Oliveri syngur. Ekki ástarlag. Hann er ekki sá þægilegasti í samskiptum skilst mér.
Hlið D
  1. Song for the Deaf
    “Titil- og lokalagið” er flott lag sem endar á tilvísun í opnunarlag fyrri plötu.
  2. Mosquito Song
    Flott “leynilag” í allt annarri stemmningu en restin af plötunni. Í viðlaginu syngur hann “Lullabies to paralyze”, sem er titill næstu plötu þeirra.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top