Afmælisplata #44: David Bowie – The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars

2024 útgáfa – Discogs: €23.89

The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars er 54 ára í dag!

Geimveruþema á þessari plötu og margir sem tengja persónu Bowie við þetta Ziggy Stardust. Klárlega ein af hans bestu plötum og sú sem kom honum virkilega á kortið.

Hlið 1
  1. Five Years
    Það eru fimm ár í endalok jarðar vegna þess að náttúruauðlindir eru uppurar. Þetta var spilað á Musicland kvöldi, en ekki veit ég hvernig það tengdist þemanu.
  2. Soul Love
    Ziggy hrífst af ýmsum birtingarmyndum ástarinnar.
  3. Moonage Daydream
    Endurútgáfa af lagi kom út sem singúll ári áður með hliðarprojecti Bowie, sem hét Arnold Corns. Það náði engum vinsældum upphaflega, en passaði vel á þessa plötu. Hér er Ziggy í rauninni kynntur til sögunnar.
  4. Starman
    Fyrsti singúll og lagið sem gerði hann að stjörnu. Ziggy hefur samband við ungdóminn á jörðinni. Flutningurinn í Top of the Pops er eftirminnilegur. Ég verð eiginlega að leyfa því að fljóta með.
  5. It Ain’t Easy
    Eina ábreiða plötunnar. Samið af Ron Davies sem einhverjir hafa talið vera fyrirmynd Ziggy Stardust en David Bowie neitaði því.
Hlið 2
  1. Lady Stardust
    Lýsing á “androgynous” manni sem bæði menn og konur þrá.
  2. Star
    Ziggy áttar sig á að kannski sé best að vera rokkstjarna?
  3. Hang On to Yourself
    Líkt og Moonage Daydream, þá var þetta úr Arnold Corns verkefninu sem náði ekki langt. Lag sem hafði áhrif á pönkið síðar.
  4. Ziggy Stardust
    Ziggy er mikið í sviðsljósinu, en hljómsveitin “Spiders from Mars” fellur í skuggann. Egóið að fara með hann. Bowie hefur sagt frá því síðar að fyrirmyndin af Ziggy er Vince Taylor.
  5. Suffragette City
    Orkumikið lag. Á internetinu sé ég talað um innblástur frá Lou Reed og Velvet Underground, en einnig kenningar um tvíkynhneigð. “Wham Bam Thank You Ma’am!”
  6. Rock ‘n’ Roll Suicide
    Dramatískur endir á plötunni og karakternum Ziggy Stardust.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top