Afmælisplata #43: Queens of the Stone Age – Rated R

Útgáfuár óþekkt – Discogs: €24.40

Rated R er 26 ára í dag!

Önnur breiðskífa Queens of the Stone Age heitir Rated R. Það er staðreynd, þrátt fyrir að mitt eintak sé titlað “Feel Good Hit of the Summer” á kili. Kallast þetta kjölur?
Það er semsagt rangur plötutitill þar, engir lagatitlar á bakhlið (né framhlið) og dónamyndir inni í opnu. Það eru svo reyndar lagatitlar og textar á einblöðungi inni í umslagi. Hvað sem þessu öllu líður, þá er tónlistin á plötunni frábær!

Hlið A
  1. Feel Good Hit of the Summer
    Hér hefur “Hit” tvöfalda meiningu.
  2. The Lost Art of Keeping a Secret
    Með betri lögum plötunnar. Það er um mök.
  3. Leg of Lamb
    Ekki um lambalæri, en fínt lag.
  4. Auto Pilot
    Afslappað lag á sjálfsstýringu.
  5. Better Living Through Chemistry
    Ávísun í lyfseðilsskyld lyf? Þetta lag flýtur.
  6. Monsters in the Parasol
    Mátuleg blanda af hressleika og sýru. Svolítil vænisýki.
  7. Quick and to the Pointless
    Klapp og stuð í anda Eagles of Death Metal.
Hlið B
  1. In the Fade
    Mark Lanegan gestasöngvari. Frábært og vanmetið lag sem endar á vísun í upphafslagið.
  2. Tension Head
    Keyrslulag um eiturlyf með Nick Oliveri í aðalhlutverki.
  3. Lightning Song
    Notaleg brú yfir í næsta lag.
  4. I Think I Lost My Headache
    Byrjar á flottum stoner nótum, þaðan í skemmtilegan millikafla með hraðaaukningu sem endar svo í mjög undarlegum blásturshljóðfæraleik.
  5. Ode to Clarissa
    Aukalag á minni útgáfu.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top