
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band er 59 ára í dag!
Ég held að það sé óhætt að tala um þetta sem tímamótaplötu. Austurlensk áhrif, ásamt lúðrasveit í bland við barnaleg lög og sýrutripp, en einnig “hefðbundin” lög. Frábær plata!
Hlið 1 á plötu (One á bakhlið)
- Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band
Titillag plötunnar vísar til lúðrasveitar sem er hér kynnt til sögunnar. - With a Little Help From My Friends
Beint framhald af lúðrasveitinni. Barnalegt, notalegt og krúttlegt lag sem Ringo syngur. Ég hugsa alltaf til Les Claypool’s Flying Frog Brigade þegar ég heyri þetta. - Lucy in the Sky with Diamonds
Lennon sagði að þetta væri ekki um LSD, heldur væri innblásturinn teikning sem sonur hans gerði. - Getting Better
McCartney vildi eitthvað jákvætt bjartsýnislag, en Lennon er svo að gera upp ofbeldisfulla fortíð sína. - Fixing a Hole
Aðdáendur fyrir utan hús McCartneys eru innblásturinn hér. - She’s Leaving Home
Byggt á sönnum atburði þar sem Melanie Coe strauk að heiman. - Being for the Benefit of Mr. Kite!
Hér er innblásturinn plakat/auglýsing frá “Pablo Fanque’s circuses”. Karnival stemmning í þessu lagi og alls konar flækjur við útsetningu.
Hlið 2 á plötur (Two á bakhlið)
- Within You Without You
Eina lag Harrison á plötunni. Sítar og Indlandsfílingur. - When I’m Sixty-Four
McCartney samdi þetta 14 ára, en á 64 ára afmælisdaginn minn verður hringmyrkvi á sólu. - Lovely Rita
Samið um stöðumælavörð sem sektaði McCartney fyrir utan Abbey Road. - Good Morning Good Morning
Lag um leiðindin sem hversdagsleikinn er. Gömul Corn Flakes auglýsing frá 1965 er innblástur. - Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band (Reprise)
Hér kveður lúðrasveitin sem var kynnt í upphafi, en platan ekki alveg búin… - A Day in the Life
Platan endar á meistaraverki. Textinn vísar í bílslys þar sem vinur hljómsveitarinnar lést, en einnig ýmsar handahófskenndar blaðagreinar.
