
Nothing er 24 ára í dag!
Fjórða plata Meshuggah og sú fyrsta sem kom út eftir að ég kynntist hljómsveitinni. Platan var reyndar endurhljóðblönduð og gefin út breyttri útgáfu árið 2006, en mín 2023 útgáfa er endurútgáfa af 2002 útgáfunni. Frábær plata í alla staði, en umslagið minnir svolítið á Tool, líkt og textar nokkurra laga á plötunni.
Hlið A
- Stengah
Textinn virðist vera tengdur eiturlyfjum. Annars skilst mér að Stengah sé viskí blandað við sódavatn með klökum. - Rational Gaze
Mögulega mitt uppáhald riff með Meshuggah. Textinn fjallar um það hvernig við túlkum raunveruleikann út frá okkar “takmörkuðu” skynfærum og rökhugsun. - Perpetual Black Second
Að dvelja við og skammast sín fyrir mistök sem voru gerð í stundarbrjálæði
Hlið B
- Closed Eyes Visuals
“Ferðalag” á annað plan. - Glints Collide
Hér er teiknaður upp heimur fullur af andstæðum og/eða þversögnum - Organic Shadows
Erfið innri barátta. Einhvers konar fælni eða kvíði sem er verið að berjast við.
Hlið C
- Straws Pulled at Random
Hér er velt fyrir sér spurningunni hvort maður ráði því hvenær maður mætir örlögum sínum - Spasm
Ruddaleg uppljómun ljós umbreytir líkama í eitthvað nýtt form, svona eins og þegar maður hnerrar.
Hlið D
- Nebulous
Tímaleysi í martraðartómi - Obsidian
Hrafntinna er instrumental lag.
