Afmælisplata #32: Radiohead – The Bends

Óþekkt útgáfuár – Discogs: €30.45

The Bends er 31 árs í dag!

Önnur plata Radiohead, en það var nýlega sem Radiohead fór eitthvað að síast inn hjá mér. Ég er samt ekkert djúpt sokkinn.
Varðandi lagasmíðar, þá er platan nokkuð stórt stökk frá fyrstu plötu þeirra og má segja að hún hafi lagt grunninn að enn tilraunakenndari tónlist sem kom síðar.

Hlið One
  1. Planet Telex
    Fínt opnunarlag sem Thom Yorke söng liggjandi á gólfinu í þynnku. Lagið minnir mig á eitthvað, en ég kem því ekki fyrir mig hvað það er.
  2. The Bends
    Titillagið er fínt líka. The Bends á íslensku væri kafaraveiki.
  3. High and Dry
    Flott lag af safnplötunni Heyrðu 6, sem ég átti. Thom Yorke fílar það ekki.
  4. Fake Plastic Trees
    Flott lag af safnplötunni Heyrðu 7, sem ég átti ekki. Viðfangsefnið er neysluhyggja.
  5. Bones
    Óttinn við að eldast sýnist mér.
  6. (Nice Dream)
    Kom til greina sem fyrsti singúll, en varð aldrei singúll.
Hlið Two
  1. Just
    Þunglyndi, sjálfsfyrirlitning og einangrun, sem eru reyndar dæmigerð viðfangsefni hjá Radiohead.
  2. My Iron Lung
    Lag sem lýsir sambandi hljómsveitarinnar við ofursmellinn Creep af fyrstu plötunni.
  3. Bullet Proof… I Wish I Was
    Ósk um þykkari skráp.
  4. Black Star
    Bras í sambandi.
  5. Sulk
    Internetið bendir mér hér á Hungerford fjöldamorðin sem ég hafði ekki heyrt um áður.
  6. Street Spirit (Fade Out)
    Flott lag af safnplötunni Pottþétt 96, sem ég átti. Tilgangsleysi lífsins í fyrirrúmi og hinn óhjákvæmilegi dauði.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top