Afmælisplata #30: Metallica – Master of Puppets

2017 útgáfa – Discogs: €33.45

Master of Puppets er 40 ára í dag!

Brúðumeistarinn er af mörgum talin besta plata Metallica, en nýlega var hún valin besta besta plata hlustenda bestu plötunnar. Þetta var síðasta platan með Cliff Burton, en hann lést í rútuslysi síðar á árinu sem platan kom út. Nánar tiltekið, þá lést hann sama dag og konan mín fæddist.

Hlið I á bakhlið, One á plötu
  1. Battery
    Ég er staddur í rútu í skólaferðalagi á leið til Akureyrar – mögulega skíðaferðalag? Nú er ég ekki alveg klár á því hvort tónlistin sé í ferðageislaspilara eða ghettoblaster, en hvort um sig þarf rafhlöður. Þetta er rafhlaðan sem knýr áfram þrassmetal.
  2. Master of Puppets
    Frábært titillag. Eru eiturlyf brúðumeistari? Nýrri kynslóðir kynnast laginu í gegnum Stranger Things.
  3. The Thing That Should Not Be
    Lag um Cthulu, en á Ride the Lightning er instrumental um skepnuna. Primus coveruðu þetta lag, en Kirk Hammett og Les Claypool eru skólafélagar.
  4. Welcome Home (Sanitarium)
    Frábært lag. Ég sé alltaf Húna fyrir mér segja “Listen damn it, we will win”. Eflaust er brúðumeistarinn stjórnandi á geðsjúkrahúsi í þessu lagi.
Hlið II á bakhlið, Two á plötu
  1. Disposable Heroes
    Lag um hermenn sem fórnarkostnað í höndum hershöfðingjans (brúðumeistarans).
  2. Leper Messiah
    Lag um spillingu og hræsni trúarlega brúðumeistarans.
  3. Orion
    Instrumental sem er í miklum metum hjá aðdáendum.
  4. Damage, Inc.
    Skaði ehf. er ekki göfugt fyrirtæki

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top