Afmælisplata #3: System of a Down – Toxicity

Toxicity kom út fyrir 24 árum í dag!

Ég beið spenntur eftir þessari á sínum tíma og hún olli ekki vonbrigðum. Brjálæði, notalegheit, húmor, pólitík og kjaftæði til skiptis.

Hlið A
  1. Prison Song
    Gagnrýni á fangelsiskerfið í Bandaríkjunum.
  2. Needles
    Varist fíkniefnaneyslu og togið bandorminn úr rassgatinu á ykkur!
  3. Deer Dance
    Valdníðsla lögreglu gagnvart mótmælendum.
  4. Jet Pilot
    Viðlagið kemur inn á hestinn sem starir á flugmanninn.
  5. X
    Lag um innflytjendur, offjölgun og þjóðarmorð.
  6. Chop Suey!
    Mögulega þekktasta lagið þeirra? Vinsældir voru í hámarki þegar flogið var á tvíburaturnana en heyrðist lítið eftir það í útvarpi.
  7. Bounce
    Það stóð til að ég myndi flytja þetta á sviði, en hljómsveitin þekkti ekki eða kunni ekki lagið.
  8. Forest
    Líklega eitthvað náttúruverndarmiðað.
Hlið B
  1. ATWA
    Air, Trees, Water, Animals. Meiri náttúrvernd. Vísun í vistfræðilegt kerfi raðmorðingjans Charles Manson.
  2. Science
    Einhver rökleysa um að það vanti andlega þátt í vísindi. Frábært lag engu að síður.
  3. Shimmy
    Heilaþvotturinn sem hugtakið lífsgæðakapphlaup er. (mögulega)
  4. Toxicity
    Mér skilst að þetta fjalli um athyglisbrest. Hljómsveitin sem ég nefndi við lagið Bounce kunni þetta lag og það var “flutt”.
  5. Psycho
    Grúppíur og líffstíll þungarokkarans.
  6. Aerials
    Meira af andlegu ferðalagi hér.
  7. Arto
    “Leynilag” – arabískur fílingur sem er á skjön við önnur lög á plötunni.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top