Afmælisplata #26: Green Day – Dookie

2009 útgáfa – Discogs: €21.37

Dookie er 32 ára í dag!

Þriðja plata Green Day er sú fyrsta sem var gefin út af stóru útgáfufyrirtæki. Platan sló í gegn og hefur selst í bílförmum. Auk þess hefur hún unnið til ýmissa verðlauna og er á alls konar listum yfir einhver merkilegheit.

Hlið One á umslagi, 1 á plötu
  1. Burnout
    Lífsleiði og/eða sinnuleysi sem er ákveðið viðhorf pönkarans.
  2. Having a Blast
    Sjálfsmorðssprengjumaður hér notaður sem myndlíking fyrir bældar tilfinningar sem vilja brjótast út.
  3. Chump
    Biturleiki gagnvart nýjum kærasta fyrrverandi kærustu. Lagið endar á nettri skiptingu yfir í næsta lag.
  4. Longview
    Titillinn dreginn af bænum þar sem þeir fluttu lagið fyrst. Fjallar um að hanga heima, fróa sér og reykja gras.
  5. Welcome to Paradise
    Kaldur veruleikinn sem þarf að takast á við eftir flutning úr foreldrahúsum.
  6. Pulling Teeth
    Upplífgandi lag með niðurdrepandi texta eða svörtum húmor. Lagið fjallar um mann sem er fórnarlamb í ofbeldissambandi.
  7. Basket Case
    Þeirra stærsta lag og hlustunartölur á Spotify styðja þá fullyrðingu mína. Kvíðatilfinningar lagahöfundar sem var seinna greindur með kvíðaröskun.
Hlið Two á umslagi, 2 á plötu
  1. She
    Fyrrnefnd fyrrverandi kærasta sýndi honum feminískt ljóð titlað “She” og þetta lag er innblásið af því ljóði.
  2. Sassafras Roots
    Iðjuleysingjar að hanga saman. Enn er sú fyrrverandi viðloðin í texta.
  3. When I Come Around
    Stúlka vill alvarlegra samband en drengur. Óöryggi og léleg sjálfsmynd skína í gegn hjá dreng.
  4. Coming Clean
    Söngvarinn að opinbera tvíkynhneigð sína.
  5. Emenius Sleepus
    Internetið segir annaðhvort endurnýjuð kynni við gamlan vin sem veldur vonbrigðum eða sjálfsniðurrif.
  6. In the End
    Um mann eða menn sem móðir söngvarans hittir eftir andlát föður hans.
  7. F.O.D.
    Stendur fyrir “Fuck Off and Die”. Pirringur að brjótast út og mér sýnist að það eigi að brenna allar brýr að baki sér.
  8. All by Myself
    Leynilag sem er ekki titlað á umslagi. Saga af sjálfsfróun sem er útskýrð í stuttu máli hér fyrir neðan

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top