
Jar of Flies er 32 ára í dag!
Þriðja stuttskífa Alice in Chains og fyrsta stuttskífan í sögunni sem toppaði Billboard 200 í Bandaríkjunum.
Alltaf fundist þessar pælingar varðandi stuttskífu/breiðskífu (EP/LP) svolítið ruglingslegar. Þrusugóð plata með stóru lögin á hlið 1.
Hlið 1
- Rotten Apple
Eins og stundum áður er umfjöllunarefnið eiturlyfjafíkillinn. - Nutshell
Einmanaleiki og örvænting. Lagið var aldrei gefið út sem singúll, en gert ódauðlegt sem opnunarlag á unplugged tónleikunum þeirra. Ég klökkna oft þegar ég heyri þetta.
- I Stay Away
Áframhaldandi sársauki, en ekki alveg eins þungt og fyrstu lögin. - No Excuses
Hér er eitthvað verið að reyna taka sig á.
Hlið 2
- Whale & Wasp
Melankólískur hljóðfæraleikur án söngs. - Don’t Follow
Hvort á eiturlyfjanotandinn ekki afturkvæmt heim eða er hann að biðja aðra um að fylgja ekki í hans spor? - Swing On This
Þeir enda plötuna á léttri sveiflu. Undarlegt framhald af Don’t Follow. Fer hann heim?
