
Fyrsta plata Led Zeppelin er 57 ára í dag!
Frumraun brautryðjendanna í Led Zeppelin. Frábær plata sem er oft á listum yfir bestu plötur allra tíma.
Öll lög á plötunni eru með Wikipedia grein, svo áhugasamir ættu að geta kafað dýpra.
Hlið One
- Good Times Bad Times
Ótrúlegt opnunarlag á ferlinum sem sýnir strax hæfileika allra meðlima. - Babe I’m Gonna Leave You
Tökulag sem var upphaflega titlað sem þjóðlag. Í kringum 1990 var Anne Bredon réttilega titluð sem lagahöfundur - You Shook Me
Gamalt blúslag frá Willie Dixon. Einhver spenna milli Jimmy Page og Jeff Beck varðandi uppruna. - Dazed and Confused
Samið af Jake Holmes, Yardbirds gerðu sína útgáfu og svo enn önnur með Zeppelin. Jimmy Page á fiðluboganum.
Hlið Two
- Your Time Is Gonna Come
Kona sem heldur framhjá og mun gjalda fyrir það. - Black Mountain Side
Eitt af lögunum sem Jimmy Page fékk lánað – Down by Blackwaterside - Communication Breakdown
Remasters safnplatan eru mín fyrstu kynni af Zeppelin. Þetta er alltaf upphafslag í mínum bókum. Proto-punk stimpillin sem er stundum sett á þetta lag finnst mér viðeigandi. - I Can’t Quit You Baby
Enn eitt lagið frá Willie Dixon. Menn að blúsa yfir sig hér. - How Many More Times
Lengsta lagið, en fyrstu útgáfur listuðu það sem 3:30. Það var viljandi gert til að fá útvarpsspilun segja þeir.
