
Það er puð að vera strákur er 36 ára um þessar mundir!
Ég nota 23. nóvember, því þann 16. nóvember 1989 var hún væntanlega innan fárra daga og þessi dagsetning passar vel á milli afmælisplatna 13 og 15.
Frábær plata frá Bjartmari! Hann er flottur samfélagsrýnir og textarnir alltaf þrælskemmtilegir, ljóðrænir og hnyttnir.
Hlið 1 á umslagi, A á plötu
- Koks í lögfræði
Glæsilegt opnunarlag um gúbba með pungapróf í sálfræði sem hefur nóg að garfa og nærist á káli. - Ég teikna
Lýsingar á myndum mannlífsins sem hann teiknar, párar, krassar o.s.frv. - Mambó og rokk
Einhver út á galeiðunni sem notar smokk (sé þess sérstaklega krafist af neytendum). - Pínulítið peð
Skáld í ástarhug og tregfullum pælingum um tilveru sína. - Lúlla hverfur
Lúlla vill ekkert með íslensku lopapeysugæjana hafa. Hún kýs strákana upp á velli og heitir nú Diana. - Það er puð að vera strákur
Frábært tiltillag, fullt af kaldhæðnislegum karlrembufrösum og ímyndum.
Hlið 2 á umslaði, B á plötu
- Stúlkan sú er elskar mig
Hálfgerð andstæða við titillagið. Hér er töluverður undirlægjuháttur í ástarsambandi. - Súrmjólk í hádeginu
“Barnaleg” með viðlagi sem allir þekkja og frábært trall í lokin. Eiríkur Fjalar gestasöngvari. - Bandormurinn
Pabbi sem er orðinn þreyttur á syni sínum. “Gamli er í fýlu, hann er í fýlu út í sjálfan sig”. Spurning hvort pabbi sé Sumarliði? - Babb í bátinn
Lag um sambandsslit, samt kímni eins og Bjartmari er von og vísa. - Ég sópa
Skemmtilegur texti um dagsins amstur hjá einhverjum sem vinnur við að sópa bílaverkstæði. - Viltu þá elska mig
Hressandi lag með fallegum náttúrulýsingum í versum og svo spurningin “Viltu þá elska mig, fram á nótt/haust/vor?” í viðlagi.
