Afmælisplata #11: Nirvana – MTV Unplugged in New York

Unplugged in New York er 31 árs í dag!

Næstmest selda platan í MTV Unplugged seríunni. Lagalistinn var óhefðbundinn, en næstum helmingur laganna var eftir aðra listamenn og lítið spilað af þekktustu lögunum. Tónleikarnir fóru fram aðeins nokkrum mánuðum áður en Kurt Cobain lést.

Hlið 1
  1. About a Girl
    Þessi útgáfa er líklega þekktari en hljóðversútgáfan af fyrstu plötu þeirra, Bleach.
  2. Come As You Are
    Af Nevermind. Ekki þekktari en hljóðversútgáfan, en flott útgáfa.
  3. Jesus Doesn’t Want Me for a Sunbeam
    Fyrsta tökulag. Lagið heitir Jesus Wants Me for a Sunbeam með The Vaselines, en það er byggt á kristilegum barnasálmi sem heitir I’ll be a Sunbeam. Krist Novaselic flottur á harmonikkunni.
  4. The Man Who Sold the World
    Annað tökulag, nú frá David Bowie. Eitt eftirminnilegasta lag tónleikanna.
  5. Pennyroyal Tea
    Cobain flytur lagið aleinn held ég.
  6. Dumb
    Sellóið kemur sterkt inn hér.
  7. Polly
    Lítið breytt frá upprunalegu útgáfunni en passar vel í stemmninguna.
Hlið 2
  1. On a Plain
    Ekki undan neinu að kvarta hér.
  2. Something in the Way
    Lagið er drungalegra en stúdíóútgáfan og aftur kemur sellóið sterkt inn.
  3. Plateau
    Þriðja tökulag og fyrsta af þremur í röð með Meat Puppets. Öll þrjú lögin eru af plötunni Meat Puppets II.
  4. Oh Me
    Fjórða tökulag, aftur Meat Puppets. Cobain syngur mýkra en venjulega.
  5. Lake of Fire
    Fimmta tökulag og síðasta í Meat Puppets seríunni. Líklega það þekktasta af þremur flottum lögum.
  6. All Apologies
    Flott útgáfa af einu þekktasta lagi In Utero.
  7. Where Did You Sleep Last Night
    Sjötta tökulag. Gamalt þjóðlag sem þeir þekktu í flutningi Lead Belly. Innlifunin í lok lagsins er mögnuð og situr svolítið í manni.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top