Afmælisplata #10: Dopelord – Songs for Satan

2024 útgáfa – Discogs: €25.00

Songs for Satan er 2 ára í dag!

Einn af eigendum Musicland prangaði þessari pólsku stoner/doom plötu inn á mig þegar ég var að leita að Fu Manchu.
Það eru aðeins þrjú lög á hvorri hlið, en lögin eru um 7 mínútur hvert. Þar sem stemmningin er svolítið einsleit á öllum lögum ætla ég að sleppa því að fara yfir hvert lag og láta eftirfarandi samantekt duga.
Platan er full af drungalegri dulspeki og kukli yfir spikfeitum og fuzzy doom gítarriffum. Fín upplifun fyrir áhugafólk um þessa tegund tónlistar.

Hlið A
  1. Night of the Witch
  2. The Chosen One
  3. One Billion Skulls
Hlið B
  1. Evil Spells
  2. Worms
  3. Return of the Witch

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top