🇿🇦 Bobotie

Innblástur: Taste of the Place

Hráefni

  • Brauðsneiðar, 3 stk
  • Mjólk, 300 ml
  • Ólívuolía, 2 msk
  • Rauðlaukur, 1 stk
  • Laukur, 1 stk
  • Skalottulaukur, 1 stk
  • Karríduft, 4 tsk
  • Ítölsk kryddblanda, 1 tsk
  • Cumin, 1 tsk
  • Túrmerik, ½ tsk
  • Hvítlaukur, 2 rif
  • Nautahakk, 800 g
  • Kirsuberjahlaup, 2 msk
  • Apríkósusulta, 2 msk
  • Sítróna, 1 stk
  • Tómatpúrra, 4 tsk
  • Salt, 2 tsk
  • Pipar, 2 tsk
  • Egg, 2 stk
  • Lárviðarlauf, 4 stk

Undirbúningur

  • Láta 3 brauðsneiðar liggja í 200 ml af mjólk í skál
  • Saxa og setja saman í skál: 1 stk lauk, 1 stk rauðlauk og 1 stk skalottulauk
  • Blanda kryddblöndu í litinn bolla: 4 tsk karríduft, 1 tsk ítölsk kryddblanda, 1 tsk cumin, ½ tsk túrmerik
  • Afhýða 2 hvítlauksrif
  • Rífa börk af einni sítrónu og kreista safann
  • Forhita ofn í 180°á undir yfir

Aðferð

  1. Hita 2 msk af ólívuolíu á miðlungshita og mýkja laukana
  2. Bæta kryddblöndunni út í og pressa hvítlauksrifin
  3. Hækka í miðlungsháan hita og brúna 800 g af nautahakki
  4. Þegar hakkið er klárt, þá fer pannan af hellunni og hræra saman við 2 msk af kirsuberjahlaupi, 2 msk af apríkósusultu, 4 tsk af tómatpúrru, sítrónuberki og safa ásamt 2 tsk af salti og 2 tsk af pipar. Færa yfir í eldfast mót
  5. Nú fer brauðið úr mjólkinni, rífa það og kreista vökvann aftur í skálina og blanda “þurrkaða” brauðinu saman í eldfasta mótið.
  6. Bæta 100 ml af mjólk í skálina ásamt 2 eggjum og hræra saman.
  7. Hella eggjamjólkurblöndunni í eldfasta mótið, leggja 4 lárviðarlauf yfir og inn í ofn í 45 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top