🇼🇸 Kale Moa

Innblástur: The Koko Samoa

Hráefni

  • Kjúklingalundir, 800 g
  • Laukur, 1 stk
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Engifer, 20 g
  • Karrí, 1 msk
  • Olía, 1 msk
  • Kókosmjólk, 400 ml
  • Kjúklingakraftur, 1 tsk
  • Vatn, 100 ml
  • Kartöflur, 400 g
  • Salt, 1 tsk
  • Pipar, ½ tsk

Undirbúningur

  • Skera 800 g af kjúklingalundum í tvennt hverja, pipra með ½ tsk af pipar
  • Grófsaxa 1 stk lauk
  • Afhýða þrjú hvítlauksrif og pressa í litla skál ásamt 20 g af söxuðu engifer
  • Gera kjúklingasoð með 1 msk af krafti og 100 ml af vatni
  • Flysja kartöflur og skera í 2-3 cm teninga

Aðferð

  1. Hita 1 msk af olíu á miðlungsháum hita á pönnu
  2. Brúna kjúklinginn í skömmtum, 1-2 mínútur á hvorri hlið og leggja svo til hliðar
  3. Lækka í miðlungshita og mýkja lauk í nokkrar mínútur
  4. Bæta við hvítlauk og engiferi
  5. Næst fer 1 msk af karrí saman við og hrært vel saman
  6. Nú fer 1 dós (400 ml) af kókosmjólk út í ásamt 100 ml af kjúklingasoði og kartöflunum ásamt 1 tsk af salti. Lok yfir pönnuna með smá andrými.
  7. Þegar suðu er náð, þá er lækkað í miðlungslágan hita og látið malla í korter
  8. Kjúklingurinn fer nú aftur út í, hrært vel saman og látið malla í 10 mínútur

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top