🇹🇻 Tuvalutúnfiskur með kókosgrjónum

Innblástur: Global Table Adventure

Hráefni

  • Túnfiskur, 500 g
  • Grjón, 300 ml
  • Vatn, 500 ml
  • Kókosmjólk, 600 ml
  • Salt, 2 tsk
  • Gúrka, 1 stk
  • Vorlaukur, 4 stk
  • Laukur, 1 stk
  • Hvítlaukur, 2 rif
  • Engifer, 1 tsk
  • Olía, ½ dl
  • Chili, 1 stk
  • Karrí, 1 msk
  • Sojasósa, 3 msk

Undirbúningur

Kókosgrjón

  • Setja 500 ml af vatni, 200 ml af kókosmjólk og 2 tsk af vatni í pott.
  • Skola og setja 300 ml af grjónum í skál.

Túnfiskur

  • Setja ½ dl olíu á pönnu og saxa 1 stk lauk í skál.
  • Pressa tvö hvílauksrif, saxa 1 tsk engifer og 1 stk chili. Allt saman í litla skál eða bolla.
  • Flysja 1stk gúrku og skera svo í hálfmána. Setja í skál ásamt 4 stk af söxuðum vorlauk.
  • Skera túnfisk í munnbita.

Aðferð

Kókosgrjón

  1. Kveikja undir potti á fullum styrk með lok á.
  2. Þegar suða kemur upp, þá lækka í lágan hita, setja grjón út í og lok aftur á. Sjóða í 10 mínútur.
  3. Slökkva á hellu en leyfa að standa undir loki í 10 mínútur.

Túnfiskur

  1. Hita olíu á miðlungsháum hita. Bæta svo lauk út í og steikja í ca 5 mínútur.
  2. Bæta við skálinni með hvítlauk, engifer og chili. Lækka í miðlungshita og gefa þessu örfáar mínútur.
  3. Nú fer skálinn með gúrku og vorlauk á pönnuna, ásamt 400 ml af kókosmjólk og 3 msk af sojasósu. Leyfa þessu að ná upp suðu.
  4. Að lokum fer túnfiskurinn út í og eldaður eftir smekk í 2-10 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top