🇹🇷 Iskender

Innblástur: Hello Fresh

Hráefni

  • Rauðlaukur, 2 stk
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Tómatsalt, 1 tsk
  • Fersk mynta, 5 g
  • Tómatar, 5 stk
  • Nautahakk, 800 g
  • Tyrkneskt flatbrauð, 1 stk
  • Grísk jógúrt, 300 g
  • Rauð paprika, 2 stk
  • Ólívuolía, 3 msk
  • Salt, 1 tsk
  • Pipar, 2 tsk

Undirbúningur

  • Skera og kjarnhreinsa fimm tómata og setja í stóra skál
  • Skera tvo rauðlauka í þunnar sneiðar, annar fer í skálina með tómötunum en hinn í nýja skál
  • Afhýða þrjú hvítlauksrif, sneiða tvö þeirra og setja í skálina með tómötum og rauðlauk. Pressa síðasta hvítlauksrifið í skálina með rauðlauknum
  • Skera tvær rauðar paprikur í stóra bita og setja í þriðju skálina
  • Setja 1 msk af ólívuolíu í tómat, rauðlauk og hvítlauksskálina ásamt ½ tsk af tómatsalti og ½ tsk pipar. Blanda vel
  • Setja ½ msk af ólívuolíu í paprikuskálina ásamt ½ tsk af tómatsalti og ½ tsk pipar. Blanda vel
  • Hella úr báðum skálum í form fyrir ninja grill, en halda paprikunni aðskildu frá hinu grænmetinu.
  • Saxa 5 g af ferskri myntu og hræra við 300 g af grískri jógúrt. Geyma í ísskáp þar til borið fram

Aðferð

  1. Ninja græja á 180° roast stillingu í 20 mínútur og ofnbaka grænmetið úr fyrstu og þriðju skál.
  2. Hita pönnu með 1½ msk af ólívuolíu og steikja rauðlaukinn og hvítlaukinn sem fóru í aðra skálina þar til mýkist.
  3. Steikja svo 800 g af nauthakki á pönnuna þar til það brúnast. Salta og pipra með 1 tsk of hvoru.
  4. Tyrkneska flatbrauðið fer í ofninn á meðan hakkið steikist, eftir leiðbeiningum (ca 10 mín)
  5. Þegar ofnsteikta grænmetið er klárt, er öllu nema paprikunni hellt í mæliglas og maukað með töfrasprota ásamt 100 g af vatni.
  6. Flatbrauðið er skorið í stóra bita þegar það er klár og raðað yst á diskinn. Maukið fer í miðjuna, hakkið yfir það, paprikubitarnir raðaðir í kringum þetta og sletta af jógúrtsósunni með myntu fer þarna einhvers staðar.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top