
Hráefni
- Kjúklingabringustrimlar, 800 g
- Olía, 2 tsk
- Belgbaunir, 300 g
- Rauðlaukur, 2 stk
- Hvítlaukur, 4 rif
- Chili, 1 stk
- Salthnetur, 40 g
- Basilika, 10 g
- Vatn, 800 ml
- Salt, 4 tsk
- Grjón, 300 ml
- Sojasósa, ½ dl
- Ketjab Manis, ½ dl
- Worcestersósa, 1 msk
- Kartöflusterkja, 8 g
- Sykur, 2 tsk
- Pipar, 1 tsk
Undirbúningur
Grjón
- 600 ml vatn og 2 tsk salt í pott
Kjúklingur og grænmeti
- 200 ml vatn og 2 tsk salt á pönnu
- Skera enda af 300 g af belgbaunum og svo í tvennt.
- Skera 2 stk rauðlauk í þunna strimla og pressa 4 hvítlauksrif saman við í skál.
- Fræhreinsa og hakka 1 stk chili. Setja helming í skálina með hvítlauk og rauðlauk.
- Skera 10 g basiliku blöð í strimla.
- Hræra saman: 200 ml vatn, ½ dl sojasósa, ½ dl ketjab manis, 1 msk worcestersósa, 8 g kartöflusterkja, 2 tsk sykur og 1 tsk pipar.
Aðferð
Grjón
- Ná upp suðu, lækka í lágan hita, setja grjón út í og láta malla í 10 mínútur undir loki.
- Slökkva undir og leyfa að standa undir loki í aðrar 10 mínútur.
Kjúklingur og grænmeti
- Ná upp suðu, lækka í miðlungslágan hita og láta belgbaunir malla í 7 mínútur. Hella svo af pönnu í sigti.
- Steikja kjúkling í olíu þar til hann brúnast.
- Taka kjúkling af pönnu og leggja til hliðar. Nú fer chili-, hvítlauk- og rauðlauksskálin á pönnuna ásamt belgbaununum. Steikja í nokkrar mínútur.
- Kjúklingur aftur á pönnuna, ásamt vatni, soja, ketjab manis, worcester, kartöflusterkju, sykur og pipar vökvanum sem var hrærður saman og þriðjung af basilikunni.
- Hræra vel í þessu og gefa nokkrar mínútur, þar til sósan þykknar.
- Bera fram og strá yfir afgang af chili, basiliku og salthnetum.
