🇸🇴 Lambapottréttur (Bariis Isku-karis)

Innblástur: Xawaash

Hráefni

  • Lambakjöt, 900 g
  • Laukur, 1 stk
  • Hvítlaukur, 5 rif
  • Kanill, 3 stangir
  • Heill negull, 8 stk
  • Kardemommubelgir, 8 stk
  • Olía, 100 ml
  • Vegeta, 3 msk
  • Harissa krydd, 1 msk
  • Tómatar, 3 stk
  • Grjón, 300 ml
  • Vatn, 600 ml

Undirbúningur

  • Hreinsa 300 ml af grjónum og láta þau liggja í vatni í 2 tíma.
  • Skera 900 g af lambakjöti í munnbita.
  • Skera 1 stk lauk í þunnar sneiðar.
  • Pressa 5 hvítlauks rif og setja í skál með 3 kanilstöngum, 8 stk heilum negul og 8 stk kardemommubelgjum.
  • Mauka 3 stk af tómötum með töfrasprota.

Aðferð

  1. Hita 100 ml af olíu í steypujárnspotti á miðlungs hita.
  2. Steikja lauksneiðar þar til þær glærast.
  3. Bæta við skálinni með hvítlauk, kanil, negul og kardemommu. Blanda vel saman við og steikja í 2 mínútur.
  4. Bæta lambakjötinu við ásamt 3 msk af vegeta og 1 msk af harissa. Brúna kjötið vel.
  5. Setja maukuða tómöta út í, lok á pottinn og malla í korter.
  6. Nú fer 600 ml af vatni í pottinn og látið malla undir loki í 90 mínútur.
  7. Lækka í lágan hita, bæta grjónunum við, hræra vel í þessu og malla áfram undir loki í 20 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top