
Hráefni
- Kjúklingalæri, 4 stk (1100 g)
- Sítróna, 3 stk
- Laukur, 2 stk
- Lime, 1 stk
- Olía, 2 msk
- Salt, 4 tsk
- Hvítlaukur, 3 tsk
- Sinnep, 1 tsk
- Vatn, 900 ml
- Kjúklingakraftur, 2 msk
- Lárviðarlauf, 1 stk
- Pipar, 1 tsk
- Grjón, 200 ml
Undirbúningur
Kjúklingur
- Marinering. Blanda hráefnum í ziploc poka og marinera í ísskáp í 8 klst
- Saxa einn lauk
- Kreista safa úr 2 stk sítrónu og 1 stk lime
- 1 msk af olíu og 1 tsk af salti.
- Þegar eldun fer að hefjast.
- Fjarlægja kjúkling úr marineringu, þerra með eldhúspappír og henda marineringu.
- Skera 1 stk lauk í þunnar sneiðar
- Afhýða þrjú hvítlauksrif
- Blanda 500 ml af vatni við 2 msk kjúklingakraft
Grjón
- Mæla 200 ml af grjónum
- Setja 400 ml af vatni í pott ásamt 2 tsk af salti
Aðferð
Kjúklingur
- Hita 2 msk af olíu á háum hita í steypujárnspotti
- Steikja kjúkling í nokkrar mínútur á hvorri hlið til að fá gyllta húð.
- Lækka í miðlungshita leggja steiktan kjúkling til hliðar.
- Nú fer sneiddur laukur í pottinn og steiktur þar til hann er vel brúnn. Skrapa vel úr botni.
- Pressa hvítlauksrifin þrjú og 1 tsk af sinnepi í pottinn, hræra vel og malla í mínútu.
- Nú fer kjúklingasoðið í pottinn og 1 tsk salti, 1 tsk pipar og lárviðarlaufi hræt saman við.
- Kjúklingur fer aftur í pottinn, hiti lækkaður í lágan hita og látið malla undir loki í tæpan klukkutíma.
Grjón
- Ná upp suðu á hæsta hita
- Lækka í lágan hita og bæta grjónum út í. Malla undir loki í 10 mín
- Slökkva undir og leyfa hvíla í 10 mín undir loki í viðbót.
