
Hráefni
- Laukur, 3 stk
- Blandað nauta- og grísahakk, 800 g
- Ólífuolía, 4 msk
- Panko raspur, 90 g
- Sveppir, 250 g
- Rjómi, 250 ml
- Kartöflur, 900 g
- Vatn, 1300 ml
- Salt, 6 ½ tsk
- Allrahanda (negulpipar), ½ tsk
- Pipar, 3 ½ tsk
- Mjólk, 3 msk
- Steinselja, 10 g
- Romain salat hjörtu, 2 stk
- Smjör, 1 msk
- Rifsberjasulta, 100 g
Undirbúningur
Kartöflur
- Flysja kartöflur og skera í fernt.
- Setja 1300 ml vatn og 3 tsk salt í pott ásamt kartöflunum.
- Grófsaxa steinselju.
Kjötbollur og sósa
- Skera einn lauk í þunnar sneiðar og saxa tvo lauka. Setja saxað í stóra skál og sneitt í djúpan disk.
- Skera 250 g af sveppum í fernt og setja í djúpa diskinn með sneidda lauknum.
- Í stóru skálina með saxaða lauknum fer svo 800 g nauta- og grísahakk, 90 g panko raspur, 3 msk mjólk, ½ tsk allrahanda, 2 tsk salt og 2 tsk pipar.
- Hnoða vel saman og skipta upp í 32 kjötbollur.
Salat
- Hræra saman í salatskál 2 msk ólífuolíu, 1 msk hvítvínsedik, 2 msk vatn, ½ tsk salt og ½ tsk pipar.
- Skera tvö romain salat hjörtu í þunnar sneiðar og blanda saman við dressingu ásamt helming af söxuðu steinseljunni.
Aðferð
Kartöflur
- Kveikja undir potti með kartöflum á fullum styrk.
- Lækka í miðlungslágan hita þegar kartöflur ná suðu og leyfa að malla í 10 mínútur.
- Slökkva á hellu, vatn úr potti og velta kartöflum upp úr 1 msk smjör og helming af saxaðri steinselju (hinn helmingurinn fór í salat)
Kjötbollur og sósa
- Hita 2 msk af ólifuolíu á pönnu á miðlungsháum hita og steikja bollur á öllum hliðum í nokkrar mínútur þar til þær brúnast. Þetta þarf að gera í skömmtum og leggja þær svo til hliðar.
- Nú fer djúpi diskurinn með laukstrimlum og sveppabitum á pönnuna. Malla í örfáar mínútur.
- Hella 250 ml af rjóma á pönnuna ásamt 1 tsk af salti og 1 tsk af pipar. Hræra saman við.
- Lækka í miðlungslágan hita, setja bollurnar aftur út í og leyfa að malla undir loki í 8 mínútur.
Bera fram með salati og rifsberjasultu.
