🇷🇼 Igizafuliya

Innblástur: 196 Flavors

Hráefni

  • Laukur, 2 stk
  • Paprika, 2 stk
  • Púrrulaukur, 1 stk
  • Selerí, 3 stilkar
  • Tómatur, 3 stk
  • Tómatpúrra, 2 msk
  • Spínat, 100 g
  • Matbanani, 2 stk
  • Kjúklingalæri með legg, 4 stk
  • Olía, 50 ml
  • Vatn, 500 ml
  • Salt, 2 tsk
  • Pipar, 2 tsk

Undirbúningur

  • Saxa 2 stk lauk, skera 2 stk papriku í bita og 1 stk púrrulauk í þunnar sneiðar. Blanda saman í skál.
  • Skera 3 stilka af selerí og 3 stk tómata í litla bita og blanda í aðra skál ásamt 2 msk af tómatpúrru.
  • Afhýða og helminga 2 stk matbanana og svo skera í tvennt langsum svo hvor matbanani er í fjórum bitum.
  • Sjóða 500 ml af vatni og hræra út í 2 tsk af salti og 2 tsk af pipar.
  • Setja 50 ml af olíu í steypujárnspott.

Aðferð

  1. Hita olíu á háum hita. Þegar hún er orðin heit, þá steikja kjúklingalærin á hvorri hlið þar til þau brúnast.
  2. Setja skálina með lauk, papriku og púrrulauk í pottin og láta malla í 10 mínútur.
  3. Lækka í miðlungshita og bæta við skálinni með selerí og tómötum og láta malla í aðrar 10 mínútur.
  4. Næst fer vatnið með salti og pipar í pottinn. Ná upp suðu, lækka í miðlungslágan hita og svo aftur malla í 10 mínútur.
  5. Fjarlægja 2 læri úr pottinum og setja matbananana út í, spínat yfir þá og svo lærin aftur yfir þetta. Láta malla undir loki í 25 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top