🇴🇲 Machboos

Innblástur: Olive Magazine

Hráefni

  • Olía, 3 msk
  • Laukur, 1 stk
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Kanelstöng, 2 stk
  • Kardemommubelgur, 8 stk
  • Harissa-kryddblanda, 3 tsk
  • Paprika, 1 stk
  • Tómatpúrra, 2 msk
  • Kjúklingaleggir, 1200 gr
  • Tómatur, 3 stk
  • Vatn, 1 líter
  • Salt, 2 tsk
  • Grjón, 400 g

Undirbúningur

  • Skera 1 stk lauk í smáa bita og leggja til hliðar.
  • Afhýða 3 hvítlauksrif, pressa og leggja til hliðar í litla skál ásamt 3 tsk af harissakryddi, tveimur kanelstöngum og 8 kardemommubelgum.
  • Skera 3 stk tómata og 1 stk paprika í litla bita og blanda saman í litla skál.
  • Vigta 400 g af grjónum og leggja til hliðar.

Aðferð

  1. Hita 3 msk af olíu í steypujárnspotti á miðlungshita. Steikja laukinn í nokkrar mínútur þar til hann verður glær.
  2. Blanda litlu skálinni með harissakryddinu, kanelstöngunum, kardemommubelgunum og hvítlauknum saman við og elda í örfáar mínútur.
  3. Hræra 2 msk af tómatpúrru saman við og malla í örfáar mínútur í viðbót.
  4. Hækka í miðlungsháan hita og steikja kjúklingaleggina í nokkrar mínútur svo þeir brúnist.
  5. Lækka aftur í miðlungsháan hita, bæta við tómötunum og paprikunni ásamt einum lítra af vatni og 2 tsk af salti. Setja lok á pottinn og láta malla í 20 mínútur.
  6. Lækka í lágan hita, bæta grjónunum saman við og lokið aftur á. Láta malla undir lokinu í 20 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top