
Hráefni
- Lambalæri, 2 kg
- Hvítlaukur, 12 rif
- Rósmarín, 8 greinar
- Laukur, 1 stk
- Lárviðarlauf, 2 stk
- Þurrkað oregano, 1½ tsk
- Kjúklingakraftur, 1 msk
- Vatn, 200 ml
- Hvítvín, 100 ml
- Sítróna, 1 stk
- Ólívuolía, 3 msk
- Hunang, 2 msk
- Paprikukrydd, 2 tsk
- Salt, 2 tsk
- Pipar, 1 tsk
- Fetaostur, 200 g
- Tómatur, 1 stk
- Gul paprika, 1 stk
- Kartöflur, 800 g
- Kartöflukrydd, 2 tsk
- Olía, 1 msk
Undirbúningur
Lambakjöt
- Forhita ofn í 220° með blæstri
- Afhýða 12 hvítlauksrif. Skera þrjú þeirra í þunnar ræmur, svo þú hafir 12 þunnar hvítlaukssneiðar.
- Skera 8 rósmaríngreinar í 3 cm bita.
- Skera 12 raufar í lambalærið, setja eina hvítlaukssneið í hverja rauf og troða smá rósmarín sömuleiðis.
- Afhýða einn lauk, skera í 6 bita og setja í miðjan botn á steikarpotti, ásamt tveimur lárviðarlaufum, 1½ tsk af þurrkuðu oregano og afgangnum af hvítlauksrifjum og rósmaríngreinum.
- Leggja lambalærið ofan á laukin og kryddin.
- Blanda kjúklingasoð úr 1 msk af kjúklingakrafti og 200 ml af vatni. Hella í pottinn ásamt 100 ml af hvítvíni og kreistum safa úr einni sítrónu.
- Hræra saman í litlum bolla 2 msk af hunangi, 2 msk af ólívuolíu, 2 tsk af paprikukryddi, 2 tsk af salti og 1 tsk af pipar. Hella þessu svo yfir lærið, nudda vel í það og setja svo lok yfir pottinn.
Kartöflur
- Skera hverja kartöflu í fernt og velta upp úr 1 msk af olíu og 2 tsk af kartöflukryddi. Setja í form.
Salat
- Skera einn tómat og eina gula papriku í litla bita og setja í skál.
- Mylja 125 g af fetaosti yfir og blanda saman. Geyma í ísskáp.
Aðferð
Lambakjöt
- Setja steikarpott í 220° heitan ofninn og lækka strax í 160°. Leyfa þessu að eldast í 3 klst.
- Taka steikarpottinn út, hækka aftur í 220° og á meðan ofninn hitnar er 75 g af fetaosti mulinn yfir lærið og 1 msk af ólívuolíu stráð yfir.
- Aftur inn í ofn í 20 mínútur.
- Taka úr ofni og hvíla undir álpappír í hálftíma
Kartöflur
- Stilla Ninja á Roast og elda í 25 mínútur.
