
Hráefni
- Lax, 4 x 300g
- Sjávarsalt, 2 tsk
- Pipar, 2 tsk
- Majónes, 80 g
- Hvítlaukur, 2 rif
- Sítrónubörkur, 1 tsk
- Graslaukur, 1msk
- Steinselja, 1 msk
- Panko raspur, 120 g
- Kartöflur, 600 g
- Olía, 2 msk
- Kartöflukrydd, 3 tsk
- Brokkolí, 1 stk
- Vatn, 1 líter
Undirbúningur
Forhita ofn í 220° undir/yfir
Lax og majóblanda
- Setja lax á ofnplötu og strá 2 tsk salti og 2 tsk pipar yfir.
- Blanda saman í litla skál, 80 g majónes, 2 pressuð hvítlauksrif, 1 tsk rifinn sítrónubörkur, 1 msk graslaukur og 1 msk steinselja
- Smyrja majóblöndu ofan á flökin.
- Þrýsta pankó ofan á majó.
Kartöflur
- Skera 600 g af kartöflum í bita, ef þess þarf. Ég var með smælki svo ég lét það vera.
- Velta upp úr 2 msk olíu og 3 tsk kartöflukryddi
Brokkolí
- Setja sigti yfir pott með 1 lítra af vatni.
- Skera brokkolí í munnbita
Aðferð
Lax
- Inn í ofn í korter
Kartöflur
- Í air fryer í 25 mínútur. Roast stilling á 180°, skip preheating.
Brokkolí
- Kveikja undir potti á hæstu stillingu og setja brokkolí í sigtið. Láta gufusjóða í 5 mínútur undir loki.
