🇳🇱 Kapsalon

Innblástur: BBC Food

Hráefni

  • Þurrkað oregano, 1 tsk
  • Hvítlauksduft, 1 tsk
  • Möluð kardimomma, ¼ tsk
  • Allrahanda, ¼ tsk
  • Malaður negull, ¼ tsk
  • Kanill, ¼ tsk
  • Malað múskat, ¼ tsk
  • Milt paprikukrydd, 1 tsk
  • Cumin, 1 tsk
  • Malaður hvítur pipar, ¼ tsk
  • Salt, 1 tsk
  • Kjúklingalæri, 1100 g
  • Ólívuolía, 2 msk
  • Frosnar franskar, 300 g
  • Tómatur, 1 stk
  • Skalottulaukur, 1 stk
  • Gúrka, ¼ stk
  • Rifinn gouda, 200 g

Undirbúningur

  • Kryddunum er blandað saman í því magni sem ég nefni hér að ofan (frá oregano til salt)
  • Skinnið fjarlægt af kjúklingalærum og þeim velt upp úr kryddblöndunni og 1 msk af ólívuolíu
  • Fjórðungur af gúrku er sneidd í þunnar sneiðar
  • Einn tómatur kjarnhreinsaður og skorinn í þunna báta
  • Einn skalottulaukur sneiddur þunnt

Aðferð

  1. Hita 1 msk af ólívuolíu á miðlungshita á pönnu.
  2. Steikja læri í 10 mínútur undir loki á hvorri hlið.
  3. Lækka í miðlungslágan hita og gefa 10 mínútur í viðbót á hvorri hlið.
  4. Taka af hellu láta kólna og hita ofn á grillblæstri við 250°. Á meðan kjúklingurinn kólnar, eru franskarnar loftsteiktar skv leiðbeiningum á pakka.
  5. Þegar franskarnar eru klárar eru þeir settar í eldfast mót.
  6. Eldaði kjúklingurinn er rifinn og settur yfir franskarnar.
  7. Gúrku- tómata- og skalottulaukssneiðum er sett yfir kjúklinginn og að lokum er 200 g af rifnum gouda stráð yfir allt saman.
  8. Inn í ofn í ca 10 mínútur, eða þar til osturinn er orðinn gylltur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top