🇲🇽 Mexíkósk grýta

Innblástur: Vestfirðingurinn

Hráefni

  • Olía, 2 msk
  • Nautahakk, 800 g
  • Rauð paprika, 1 stk
  • Gul paprika, 1 stk
  • Pipar, 1 tsk
  • Paprikukrydd, 2 tsk
  • Laukduft, 1 tsk
  • Salt, 2 tsk
  • Hvítlaukduft, 1 tsk
  • Cumin, 2 tsk
  • Ítölsk kryddblanda, 2 tsk
  • Laukur, 1 stk
  • Niðursoðnir tómatar, 1 dós
  • Nautakraftur, 2 msk
  • Vatn, 400 ml
  • Salsasósa, 200 ml
  • Grjón, 200 ml
  • Vorlaukur, 1 stk
  • Rifinn ostur, 200 g
  • Gular baunir, 1 dós
  • Tortilla flögur, 1 poki

Undirbúningur

  • Skera eina gula og eina rauða papriku í bita og setja í skál ásamt einum grófsöxuðum lauk
  • Gera kryddblöndu í lítinn bolla: 1 tsk pipar, 2 tsk paprikukrydd, 1 tsk laukduft, 2 tsk salt, 1 tsk hvítlauksduft, 2 tsk cumin, 2 tsk ítölsk kryddblanda
  • Blanda 2 msk af nautakraft við 400 ml af vatni
  • Mæla 200 ml af grjónum og leggja til hliðar
  • Saxa græna hlutann af vorlauk

Aðferð

  1. Hita 2 msk af olíu á háum hita á stórri pönnu og svo brúna 800 g af nautahakki
  2. Lækka í miðlungshita og blanda skálinni með lauk og papriku saman við og leyfa að mýkjast
  3. Nú fer dós af niðursoðnum tómötum, 200 ml af salsasósu og nautakraftssoðið saman við.
  4. Þegar suðu er náð, þá lækka í lágan hita, setja grjónin út í og lok yfir. Leyfa þessu að malla í hálftíma.
  5. Bera fram með meðlæti til að strá yfir: 200 g af rifnum osti, saxaður vorlaukur, ein dós af gulum baunum og poki af tortilla flögum

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top