🇲🇹 Imqarrun

Innblástur: Apron and Whisk

Hráefni

  • Pasta, 500 g
  • Grísahakk, 1 kg
  • Pastasósa, 750 g
  • Laukur, 2 stk
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Tómatpúrra, 1 msk
  • Karrí, 1 tsk
  • Cumin, 1 tsk
  • Paprikukrydd, 1 tsk
  • Þurrkað oreganó, 1 tsk
  • Þurrkað timían, 1 tsk
  • Þurrkað rósmarín, 1 tsk
  • Lárviðarlauf, 2 stk
  • Ólívuolía, 1 msk
  • Salt, 4 tsk
  • Svartur pipar, 2 tsk
  • Egg, 2 stk
  • Mjólk, 200 ml
  • Parmesan, 120 g
  • Vatn, 2500 ml

Undirbúningur

  • Grófsaxa 2 stk af lauk
  • Afhýða 3 hvítlauksrif
  • Blanda saman eftirfarandi kryddum, 1 tsk af hverju. Karrí, cumin, paprika, oreganó, timían og rósmarín.
  • Setja 2500 ml af vatni og 3 tsk af salti í pott fyrir pasta.
  • Rífa 120 g af parmesanosti. Setja 60 g til hliðar til að strá yfir eldfast mót síðar, en hin 60 g í litla skál, ásamt 2 eggjum og 200 ml mjólk. Hræra vel saman.

Aðferð

  1. Hita 1 msk ólívuolíu í steypujárnspott á miðlungs hita og steikja lauk þar til hann verður glær. Bæta svo við 3 pressuðum hvítlauksrifjum og steikja í mínútu í viðbót.
  2. Hræra kryddblöndu út í ásamt 1 msk af tómatpúrru og leyfa að malla í örfáar mínútur.
  3. Setja 1 kg af grísahakki út í ásamt 1 tsk salti og 1 tsk pipar. Láta malla þar til hakkið er steikt.
  4. Nú fer 750 g af pastasósu ásamt 2 lárviðarlaufum í pottinn. Hræra vel saman.
  5. Þegar suðu er náð, þá er lækkað í lágan hita og látið malla undir loki í 45 mínútur.
  6. Forhita ofn í 180° á undir/yfir hita.
  7. Þegar hálftími er eftir af kjötinu, þá má kveikja undir pottinum fyrir pastað á hæstu stillingu.
  8. Þegar vatnið bullsýður, þá lækka í miðlungshita setja pasta út í og soðið þar til 2 mínútur eru eftir skv. leiðbeiningum.
  9. Sigta vatn frá pasta, fjarlægja lárviðarlauf úr steypujárnspotti og hræra pastanum saman við kjötið.
  10. Næst fer skálin með eggjunum, mjólkinni og parmesan í steypujárnspottinn og öllu hrært vel saman.
  11. Hella öllu saman í eldfast mót, strá 60 g af parmesonosti yfir ásamt 2 tsk af svörtum pipar og inn í ofn í 45 mínútur.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top