
Hráefni
- Kjúklingalæri, 1200 g
- Salt, 2 tsk
- Pipar, 2 tsk
- Paprikukrydd, 1 tsk
- Cumin, 1 tsk
- Cayenne pipar, ¼ tsk
- Engiferduft, ½ tsk
- Kóríanderkrydd, ½ tsk
- Kanill, ¼ tsk
- Sítróna, 1 stk
- Hvítlaukur, 5 rif
- Olívuolía, 1 msk
- Laukur, 1 stk
- Hveiti, 2 msk
- Kjúklingakraftur, 1 msk
- Vatn, 300 ml
- Hunang, 2 msk
- Gulrætur, 2 stk
- Kóríander, 15 g
Undirbúningur
- Krydda 1200 g af kjúklingalærum með 2 tsk pipar og 2 tsk salt.
- Blanda saman í litla skál 2 msk hveiti, 1 tsk paprikukrydd, 1 tsk cumin, ¼ tsk cayenne pipar, ½ tsk engiferduft, ½ tsk kóríanderkrydd, ¼ tsk kanil.
- Rífa börk af einni sítrónu og setja til hliðar.
- Skera einn lauk í þunnar sneiðar og setja til hliðar.
- Blanda 1 msk af kjúklingakraft í 300 ml af vatni.
- Skera tvær gulrætur í sneiðar.
- Saxa 15 g af kóríander.
Aðferð
- Hita 1 msk olívuolíu í steypujárnspotti við miðlungsháan hita.
- Steikja kjúkling í fimm mínútur eða þar til húðin er orðin vel dökk, svo fjórar mínútur á hinni hliðinni. Gera þetta í skömmtum og svo leggja til hliðar.
- Lækka í miðlungshita og steikja lauk í 5 mínútur, bæta svo hvítlauk við og steikja í 30 sekúndur og svo kryddin og hveitið í 30 sekúndur í viðbót.
- Nú fer kjúklingakrafturinn í pottinn, ásamt 2 msk af hunangi.
- Fjarlægja skinnið af kjúklingnum, setja hann aftur í pottinn, lækka í miðlungslágan hita, setja lok á pottinn og malla í 10 mínútur.
- Gulræturnar fara núna í pottinn, lokið aftur á og 10 mínútur í viðbót.
- Slökkt undir og kóríander hrært út í.
Ég var með couscous með þessu, en ætli það verði ekki bara grjón næst, ef ég geri þetta aftur.
