🇰🇵 Eobokjaengban

Innblástur: 10000 Recipes

Hráefni

  • Nautabringa, 600 g
  • Kínakál, 1 stk
  • Ostrusveppir, 150 g
  • Vorlaukur, 2 stk
  • Spínat, 100 g
  • Hvítlaukur, 4 rif
  • Svört piparkorn, ½ tsk
  • Fiskisósa, 1 msk
  • Sojasósa, 1 msk

Undirbúningur

  • Láta 600 g af nautabringu liggja í vatni í klukkutíma
  • Þerra bringuna og setja í pott með 1500 ml af vatni
  • Afhýða fjögur hvítlauksrif og setja í pottinn
  • Skera hvítu hlutana af tveimur vorlaukum og setja í pottinn
  • Hálf teskeið af svörtum piparkornum í pottinn
  • Kjötið er soðið í þessu í einn og hálfan tíma, svo er það veitt upp úr og látið kólna
  • Soðið sigtað og 1 msk af sojasósu og 1 msk af fiskisósu hrært saman við
  • 1 stk Kínakál skorið í stóra bita
  • 150 g af ostrusveppum skornir í sneiðar
  • Grænu hlutar tveggja vorlauka skornir mjög gróft
  • Þegar kjötið hefur kólnað er það skorið í þunnar sneiðar
  • Nú er eftirfarandi raðað í steypujárnspott
    • Kínakál í botninn
    • Sveppir ofan á kínakál
    • 100 g af spínati ofan á sveppina
    • Grænu hlutar vorlauksins ofan á spínatið
    • Kjötsneiðar ofan á allt
    • Nautasoðið með soja- og fiskisósunum er hellt í pottinn, ca 2-3 cm djúpt

Aðferð

  1. Steypujárnspotturinn fer á hellu á miðlungshita þar til suða kemur upp
  2. Lok hálft yfir og látað malla í 10 mínútur

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top