
Hráefni
- Kartöflur, 800 g
- Bratkartoffel krydd, 2 tsk
- Olía, 4 msk
- Svínasnitsel, 600 g
- Hvítlaukur, 1 rif
- Jógúrt, 150 g
- Gúrka, 2 stk
- Rauðlaukur, 2 stk
- Tómatur, 2 stk
- Fetaostur, 250 g
- Tómatsalt, 1 tsk
- Pipar, 1 tsk
- Salt, 1 tsk
- Oregano, ½ tsk
- Basilika, ½ tsk
- Salvía, ½ tsk
- Rósmarín, ½ tsk
- Hvítlauksduft, ¼ tsk
- Laukduft, ¼ tsk
- Sítróna, 1 stk
Undirbúningur
Kartöflur
- Skera 800 g kartöflur í fernt og velta upp úr 2 msk olíu og 2 tsk bratkartoffel kryddi í stórri skál.
- Færa yfir í Ninja bakka og ekki þrífa skálina.
Salat
- Skera 2 stk rauðlauk í þunnar sneiðar, setja í salatskál og kreista safa úr hálfri sítrónu yfir.
- Skera enda af 1 stk gúrku, gúrkan svo tvennt í langsum og kjarnhreinsa. Skera svo aftur langsum og í litla bita.
- Skera 2 stk tómata í litla bita og setja svo í skálina með rauðlauknum ásamt gúrkubitunum.
- Mylja 250 g af fetaost í salatskálina, blanda öllu saman og skálina í ísskáp.
Jógúrtsósa
- Skera enda af 1 stk gúrku, gúrkan svo í tvennt langsum og kjarnhreinsa. Nota grófasta hluta rifjárns, setja í sigti og kreista safa úr gúrkunni. Þetta fer svo í litla skál.
- Pressa 1 stk hvítlauk í gúrkuna og hræra saman.
- 150 g jógúrt í skálina, hræra saman og inn í ísskáp.
Kjöt
- Blanda saman kryddi: 1 tsk tómatsalt, 1 tsk pipar, 1 tsk salt, ½ tsk oregano, ½ tsk basilika, ½ tsk salvía, ½ tsk rósmarín, ¼ tsk hvítlauksduft og ¼ tsk laukduft.
- Skera 600 g af svínasnitseli í 2 cm bita, þvert yfir hverja sneið.
- Snitsel og kryddblanda fer í skálina sem var notuð fyrir kartöflurnar og blandað saman.
Aðferð
Kartöflur
- Í Ninja á Roast stillingu, 25 mínútur við 180°
Kjöt
- Hita 2 msk af olíu á miðlungsháum hita og steikja kjöt á pönnu þar til eldað í gegn
Bera fram með salati og jógúrtsósu.
