
Hráefni
- Svartar baunir, 1 dós (400 g)
- Gular baunir, 1 dós (400 g)
- Pálmahjörtu, ½ dós (2 stangir)
- Tómatur, 2 stk
- Rauðlaukur, 1 stk
- Kóríander, 25 g
- Ólívuolía, 1 dl
- Lime, 3 stk
- Kóríanderkrydd, 1 tsk
- Skallotlaukur, 5 stk
- Lárviðarlauf, 4 stk
- Salt, 1 tsk
- Allrahanda, 1 ½ tsk
- Engiferduft, 1 tsk
- Pipar, 1 tsk
- Svínalund, 2×600 g
- Appelsína, 3 stk (300 ml safi)
- Púðursykur, 3 msk
- Ferskt engifer, 2 msk
- Avókadó, 2 stk
- Spínat, 100 g
Undirbúningur
Salat
- Skola og setja í salatskál – 1 dós (400 g) svartar baunir og 1 dós (400 g) gular baunir.
- Skera 2 stangir af pálmahjörtum í þunnar sneiðar og setja í salatskálina ásamt 2 stk af smátt skornum tómötum.
- Saxa 1 stk rauðlauk og 25 g af ferskum kóríander. Setja í skálina.
- Kreista safa úr 3 stk lime og setja í salatskálina ásamt 1 dl ólívuolíu og 1 tsk kóríanderkryddi.
- Blanda öllu vel saman og geyma í kæli, þar til verður borið á borð.
Svínalund
- Grófsaxa 3 stk af skallotlauk og hræra saman í lítilli skál með 1 tsk salt, 1 tks allrahanda, 1 tsk engiferduft, 1 tsk pipar og 2 stk mulin lárviðarlauf.
- Setja tvær 600 g svínalundir í eldfast mót og nudda skallotlaukblöndunni í báðar lundir.
- Forhita ofn í 220° undir/yfir
Sósa
- Kreista safa úr 3 stk appelsínum eða þar til við höfum 300 ml af nýkreistum appelsínusafa
- Fínsaxa 2 stk af skallotlauk og blanda saman við 3 msk púðursykur, 2 msk engiferduft, ½ tsk allrahanda og 2 stk lárviðarlauf.
- Appelsínusafinn og skallotlaukblanda fer svo saman í lítinn sósupott.
Annað
- Skera 4stk avókadó í tvennt, taka steininn úr og sneiða.
- Skola 100 g af spínati.
Aðferð
Svínalund
- Setja kjöthitamæli í aðra lundina og setja inn í 220° heitan ofn, þar til kjarnhitastig er 66°.
- Taka úr ofni og skera í þykkar sneiðar.
Sósa
- Kveikja undir sósupottinum á miðlungsháum hita.
- Ná upp suðu og láta þetta malla í ca 10 mínútur eða þar til þykkt sósunnar er viðunandi.
Spínat á jaðarinn umhverfis diskinn, salat í miðjuna, svínalund og avókadó yfir salatið til skiptis og hella appelsínusósunni yfir allt saman.
