🇫🇷 Franskar sinnepskjúklingabringur

Innblástur: The Cafe Sucre Farine

Hráefni

  • Kjúklingabringur, 900 g
  • Tómatsalt, 1 tsk
  • Ítölsk kryddblanda, 1 tsk
  • Sykur, 1 tsk
  • Pipar, 1 tsk
  • Hveiti, 1 msk
  • Ólívuolía, 1 msk
  • Smjör, 50 g
  • Skalottlaukur, 1 stk
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Hvítvín, 200 ml
  • Vatn, 1100 ml
  • Kjúklingakraftur, 2 msk
  • Grjón, 300 ml
  • Salt, 2 tsk
  • Sterkt grófkorna sinnep, 30 g
  • Creme Fraiche, 200 ml
  • Timían, nokkrar greinar

Undirbúningur

Kjúklingur og sósa

  • Fínsaxa 1 stk skallotlauk í litla skál.
  • Afhýða 3 hvítlauksrif.
  • Mæla 200 ml af hvítvíni.
  • Blanda 2 msk af kjúklingakrafti í 500 ml af sjóðandi vatni ásamt 2 lárviðarlaufum.
  • Hræra saman 200 ml af creme fraiche og 30 g af grófkorna sinnepi.
  • Hræra saman í litla skál, 1 tsk tómatsalt, 1 tsk ítölsk kryddblanda, 1 tsk sykur, 1 tsk pipar og 1 msk pipar.
  • Skera bringur í tvennt langsum og strá kryddblöndu yfir allar hliðar.
  • Setja 1 msk olívuolíu og 50 g af smjöri á pönnu.

Grjón

  • Setja 600 ml af vatni í pott ásamt 2 tsk af salti.
  • Mæla 300 ml af grjónum.

Aðferð

Kjúklingur og sósa

  1. Bræða olíu og smjör á háum hita. Þegar fer að rjúka, þá steikja kjúklingabringuhelminga í 6 mínútur á sléttu hliðinni, svo 2 mínútur á hinni. Setja á disk og lok yfir. Gera í skömmtum ef þess þarf.
  2. Þegar bringur eru farnar af pönnu, þá á að steikja skallotlauk þar til hann mýkist, svo pressa hvítlauksrif á pönnuna eldsnöggt og að lokum fer hvítvínið á pönnuna. Leyfa því að sjóða niður að mestu. Nú má byrja á grjónunum á sama tíma.
  3. Næst fer kjúklingakrafturinn með lárviðarlaufunum á pönnuna. Láta þetta malla á miðlungslágum hita á opinni pönnu í korter.
  4. Þá fer uppsafnaður safi af kjúklingnum á pönnuna, ásamt creme fraiche og sinnep blöndunni. Þegar er búið að hræra það saman þá má slökkva undir pönnu, setja bringurnar aftur út í, nokkar timían greinar yfir og standa undir loki í 8 mínútur.

Grjón

  1. Ná upp suðu á hæsta styrk.
  2. Lækka í lágan hita, setja grjón út í og malla í 10 mínútur undir loki.
  3. Slökkva á hellu, en pottur áfram þar með loki á í 10 mínútur í viðbót.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top