🇩🇯 Skoudehkaris

Innblástur: National Dish Recipes

Hráefni

  • Lambakjöt, 600 g
  • Olía, 2 msk
  • Hvítlaukur, 3 rif
  • Heill kóríander (krydd), 1 tsk
  • Kardemommubelgur, 5 stk
  • Grjón, 200 ml
  • Laukur, 1 stk
  • Túrmerik, 1 tsk
  • Cumin, 1 tsk
  • Svört piparkorn, ½ tsk
  • Vatn, 400 ml
  • Salt, 1 tsk
  • Tómatur, 4 stk
  • Ferskur kóríander, 5 g

Undirbúningur

  • Mylja 1 tsk of heilum kóríander, ½ tsk svört piparkorn og 5 kardemommubelgi í mortel. Nota svo í kryddblöndu ásamt 1 tsk af cumin, 1 tsk salt og 1 tsk af túrmerik
  • Saxa 1 stk lauk og pressa þrjú hvítlauksrif
  • Skera 600 g af lambakjöti í munnbita
  • Hreinsa 200 ml af grjónum
  • Skera tómata í báta og grófsaxa ferskan kóríander

Aðferð

  1. Hita 2 msk olíu á miðlungsháum hita í steypujárnspotti og brúna lambakjöt
  2. Bæta lauk og hvítlauk út í og leyfa því að mýkjast
  3. Nú er kryddblöndunni hrært út í og þessu gefið nokkrar mínútur.
  4. Hreinsuðu grjónunum er nú bætt út í og blandað vel við allt saman.
  5. Þá fer vatnið út í og suðu er náð.
  6. Þegar byrjar að sjóða er lækkað í lágan hita, lok sett yfir pottinn og látið malla í 20 mínútur.
  7. Ef það er vökvi enn eftir 20 mín, þá er hitinn hækkaður og látið malla í opnum potti
  8. Borið fram með tómötum og kóríander stráð yfir

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top