🇨🇮 Kedjenou

Innblástur: Gypsy Plate

Hráefni

  • Kjúklingalæri með legg, 4 stk
  • Laukur, 2 stk
  • Paprika, 3 stk
  • Eggaldin, 1 stk
  • Tómatur, 4 stk
  • Vorlaukur, 4 stk
  • Ferskt engifer, 10 gr
  • Hvítlaukur, 4 rif
  • Lárviðarlauf, 2 stk
  • Ferskt timían, 10 greinar
  • Paprikukrydd, 1 tsk
  • Salt, 3 tsk
  • Pipar, 3 tsk
  • Kjúklingakraftur, 10 g

Undirbúningur

  • Skera 2 lauka, 3 paprikur, 4 tómata og 4 vorlauka í litla bita og setja í stóra skál.
  • Saxa 10 gr af fersku engifer og bæta í skálina ásamt 4 pressuðum hvítlauksrifjum.
  • Bæta fjórum kjúklingalærum með legg í skálina ásamt 2 lárviðarlaufum, 5 greinum af timían, 1 tsk af paprikukryddi, 2 tsk af salti og 2 tsk af pipar.
  • Blanda þessu öllu vel saman og setja svo kjúklingalærin og lárviðarlaufin í skál til hliðar.
  • Skera 1 eggaldin í litla bita og blanda í stóru skálina sem kjúklingurinn var tekinn úr.
  • Setja helming af stóru skálinni í steypujárnspott, leggja svo kjúklingalærin yfir það ásamt lárviðarlaufunum og 5 greinum af timían í viðbót.S
  • Strá yfir þetta 1 tsk af pipar, 1 tsk af salti og 10 g af kjúklingakrafti og restin af grænmetinu svo yfir kjúklinginn.

Aðferð

  1. Kveikja undir potti á miðlungsháum hita og láta eldast í 15 mín undir loki.
  2. Lækka undir potti í miðlungslágan hita og malla í 35 mínútur, áfram undir loki.
  3. Lækka í lágan hita og malla í 25 mínútur í viðbót, ennþá undir loki.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top