🇧🇧 Bajan Beef Stew

Innblástur: Loop Barbados

Hráefni

  • Nautagúllas, 1 kg
  • Olía, 2 msk
  • Vatn, 800 ml
  • Worcestershire sósa, 1 msk
  • Hvítlaukur, 4 rif
  • Skallotlaukur, 3 stk
  • Púðursykur, 1 msk
  • Paprikukrydd, ½ tsk
  • Allrahanda, ½ tsk
  • Gulrætur, 4 stk
  • Sellerí, 2 stk
  • Ferskar blandaðar kryddjurtir, 1 poki
  • Salt, 2 tsk
  • Pipar, 1 tsk
  • Hveiti, 2 msk
  • Smjör, 1 msk
  • Grjón, 200 ml

Undirbúningur

  • Krydda 1 kg af nautagúllasi með 1 tsk af salti, 1 tsk af pipar og 2 pressuðum hvítlauksrifjum.
  • Afhýða og sneiða 3 stk skallotlauk.
  • Skera 2 stk sellerí í stóra bita og setja í skál til hliðar ásamt 4 stk af flysjuðum gulrótum sem hafa verið skornar í stóra bita sömuleiðis.
  • Mæla og skola 200 ml af grjónum og setja til hliðar.
  • 400 ml af vatni og 1 tsk af salti í grjónapott.

Aðferð

  1. Hita 1 msk af olíu í steypujárnspotti við miðlungsháan hita og brúna sneidda laukinn ásamt tveimur pressuðum hvítlauksrifjum. Fjarlægja svo í skál.
  2. Í sama pott fer nú kjötið ásamt 1 msk af púðursykri. Leyfa kjötinu að brúnast í nokkrar mínútur á meðan púðursykurinn bráðnar.
  3. Nú fer 400 ml af vatni í pottinn ásamt 1 msk af worcestershire sósu, blönduðu kryddjurtunum, paprikukryddi og allrahanda. Hræra vel saman og þegar suðu er náð, þá lækka í miðlungslágan hita og láta malla undir loki í 90 mínútur.
  4. Fjarlægja kryddjurtirnar og bæta gulrótunum og sellerí í pottinn. Aðrar 30 mínútur undir loki.
  5. Til að þykkja sósuna, er 2 msk af hveiti og 1 msk af smjöri hrært út í. (eða eftir þörfum/smekk)
  6. Grjónapottur í botn. Þegar suðu er náð, er lækkað í lágan hita og grjónin malla undir loki í 10 mínútur.
  7. Slökkva undir grjónapotti og láta standa í 10 mínútur í viðbót.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top