🇧🇦 Bosnísk kjötsúpa

Innblástur: Balkan Lunch Box

Hráefni

  • Blandað nauta- og svínagúllas, 1600 g
  • Hvítkál, 1 stk
  • Laukur, 2 stk
  • Gulrætur, 3 stk
  • Strengjabaunir, 200 g
  • Kartöflur, 4 stk
  • Tómatar, 4 stk
  • Paprika, 2 stk
  • Salt, 1 tsk
  • Svört piparkorn, 1 tsk
  • Paprikukrydd, 1 tsk
  • Vegeta, 2 msk
  • Vatn, eftir þörfum

Undirbúningur

  • Forhita ofn í 180° undir/yfir.
  • Raða 1600 g af gúllasi í botn á steypujárnspotti.
  • Krydda með 1 tsk salti, 1 tsk svörtum piparkornum, 1 tsk paprikukryddi og 2 msk vegata.
  • Afhýða og skera 2 stk lauka í stóra bita og dreifa yfir kryddaða kjötið.
  • Flysja og skera 3 stk gulrætur í stóra bita og dreifa yfir laukana.
  • Afhýða og skera 4 stk kartöflur í stóra bita og dreifa yfir gulræturnar.
  • Skera enda af 200 gr af strengjabaunum, skera svo í tvennt og dreifa yfir kartöflurnar.
  • Skera 4 stk tómata í stóra bita og dreifa yfir strengjabaunir.
  • Skera 2 stk paprikur í stóra bita og dreifa yfir tómata.
  • Skera 1 stk hvítkálshaus í stóra bita og raða yfir papriku.
  • Hella vatni í pottinn þar til það nær upp að efsta lagi, en fljóti ekki yfir og setja lok á pottinn.

Aðferð

  1. Setja steypujárnspottinn í 180° heitan ofn í 3 tíma.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top