🇦🇷 Nautasteik með chimichurri og hasselback kartöflum

Innblástur: All Recipes

Hráefni

  • Steinselja, 15 g
  • Laukur, 1 stk
  • Tómatur, 1 stk
  • Paprika, ½ stk
  • Hvítlaukur, 8 rif
  • Þurrkað oregano, 1 msk
  • Paprikukrydd, 1 msk
  • Sjávarsalt, 3 msk
  • Lárviðarlauf, 1 stk
  • Pipar, 1 tsk
  • Rauðvínsedik, 65 ml
  • Vatn, 65 ml
  • Ólívuolía, 250 ml
  • Nautaentrecote, 4 sneiðar (200-300 g hver)
  • Mildur laukur, 2 stk
  • Kóríander, 15 g
  • Hvítvínsedik, 115 ml
  • Ferskt timían, 2 msk
  • Ferskt oregano, 1 msk
  • Cumin, 1 msk
  • Ofnkartöflur, 4 stk
  • Fersk salvía, 8 laufblöð
  • Smjör, 140 g

Undirbúningur

Chimichurri

  • Skera 1 stk lauk, 1 stk tómat og hálfa papriku í litla bita og setja í skál ásamt 4 pressuðum hvítlauksrifjum, 15 g saxaðri steinselju, 1 msk þurrkaðu oregano, 1 msk paprikukryddi, 1 muldu lárviðarlaufi, 1 msk sjávarsalti, 1 tsk pipar og leyfa þessu að sitja í 30 mínútur.
  • Blanda 65 ml af rauðvínsediki og 65 ml af vatni í skálina og sitja í aðrar 30 mínútur.
  • Blanda 115 ml af ólívuolíu í skálina, hræra vel saman flytja í glasílát með loki og inn í ísskáp í 6 tíma.

Nautasteik

  • Saxa 2 stk af mildum lauk, 15 g af kóriander, 2 msk af fersku timían og 1 msk af fersku oregano og setja í ziploc poka ásamt 4 pressuðum hvítlauksriflum, 115 ml af hvítvínsediki, 65 ml af ólívuolíu.
  • Stinga steikur með gaffli setja þær í pokann, velta öllu saman og inn í ísskáp í 6 tíma.

Kartöflur

  • Bræða 100 g af smjöri og blanda við 70 ml af ólívuolíu ásamt 8 söxuðum salvíulaufum.
  • Skera raufir í 4 stk ofnkartöflur, velta þeim uppúr smjör og ólívuolíu blöndunni og strá ½ msk af sjávarsalti yfir hverja kartöflu. Setja í eldfast mót.
  • Forhita ofn í 220° undir/yfir

Aðferð

Nautasteik

  1. Hita ninja grill á medium, stillt á 12 mínútur.
  2. Taka steikurnar úr ísskápnum, skafa stóra bita af marineringunni af þeim og setja á grillið í 6 mínútur á hvorri hlið.

Kartöflur

  1. Setja kartöflur inn í ofn í 45 mínútur.
  2. Taka þær út, pensla vökva yfir þær og setja 10 g af smjöri yfir hverja og aftur inn í ofn í 20 mínútur.

Bera steikur fram með chimichurri ofan á.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top