🇦🇲 Khashlama

Innblástur: festival.si.edu

Hráefni

  • Lambagúllas, 800 g
  • Tómatar, 2 stk
  • Laukur, 2 stk
  • Rauð paprika, 2 stk
  • Kartöflur, 400 g
  • Svartur pipar, 1½ tsk
  • Salt, 1½ tsk
  • Ferskar kryddjurtir, 1 poki
  • Bjór, 1 L

Undirbúningur

  • Skera tvo lauka, tvo tómata, tvær paprikur í stóra bita. Blanda saman í skál með ½ tsk af salti og ½ tsk pipar.
  • Skera 400 g af skrældum kartöflum í stóra bita. Blanda saman í skál með ½ tsk af salti og ½ tsk pipar.
  • Velta 800 g af lambagúllasi upp úr ½ tsk af salti og ½ tsk pipar.

Aðferð

  1. Raða í steypujárnspott í þessari röð: kartöflur, grænmeti, lambakjöt og kryddjurtir.
  2. Nú fer líter af bjór út í þetta. Ef hann hylur ekki allt saman, þá meiri bjór eða vatn.
  3. Kveikja undir potti á miðlungsháum hita og þegar suðu er náð, þá lækka í lágan hita og malla í 2 klst

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top